Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 12/1 ´22.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. (897). fundur
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., kórónuveiran - staða mála og þakkaði starfsmönnum skólanna fyrir þeirra störf við þessar erfiðu aðstæður. Þá ræddi Sigríður Hulda 4. tl., útboð á skólamat og 7. tl., endurskoðun skólastefnu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., útboð á skólamat.
Ingvar Arnarson, ræddi 3. tl., kórónuveiran - staða mála og tók undir þakkir til starfsmanna skólanna fyrir þeirra störf við þessar erfiðu aðstæður.
Ingvar lagði fram eftirfarandi bókun.
„Það hefur verið mikið álag á starfsmenn grunn- og leikskóla Garðabæjar, starfsmenn verið í framlínu þegar kemur að covid faraldrinum og staðið vaktina með prýði. Á tyllidögum hefur þeim verið þakkað fyrir góð störf. Nú á dögunum var grunnskólakennurum boðin samningur sem að okkar mati var langt frá því sem kennarar í Garðabæ eiga skilið. Sá samningur var felldur með miklum meirihluta atkvæða grunnskólakennara. Í kjölfarið kom formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga fram í fjölmiðlum og talaði niður til kennara, það finnst okkur miður. Við viljum hvetja fólk sem er í forsvari fyrir okkur í bæjarstjórn að vanda málflutning sinn og koma fram af sanngirni. Við í Garðabæ getum gert betur gagnvart okkar fólki en það sem boðið var í þessum samningi.“
Gunnar Einarsson, ræddi 4. tl., útboð á skólamat.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 4. tl., útboð á skólamat.
Fundargerðin lögð fram.