Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar vegna lóðarinnar við Iðnbúð 6.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
4. (2011). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar vegna lóðarinnar við Iðnbúð 6. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
2. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar að lokinni grenndarkynningu.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Iðnbúðar og Smiðsbúðar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
17. (895). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar í tilefni umsóknar lóðarhafa að Iðnbúð 6 um stækkun byggingarreits. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Iðnbúðar 4 og 8 og Gilsbúðar 3, 5 og 7. (Mál nr. 2110329)
Bæjarráð Garðabæjar
04
46. (2004). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar í tilefni umsóknar lóðarhafa að Iðnbúð 6 um stækkun byggingarreits. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Iðnbúðar 4 og 8 og Gilsbúðar 3, 5 og 7.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
14. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Iðnbúðar/Smiðsbúðar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Iðnbúðar 4 og 8 og Gilsbúðar 3, 5 og 7.