Beint í efni

Hraungata 10 - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 2109063

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

11. (2018). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hrafni Guðmundssyni, kt. 311283-2199, leyfi til breytinga á lagnarými og óverulegum útlitsbreytingum einbýlishússins við Hraungötu 10.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

14. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

12. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir breytingum á einbýlishúsinu Hraungata 10.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að lagnarýmum í kjallara sé breytt í íverurými þar sem heimilt er að reisa 2-3 hæða hús á lóðinni samkvæmt deiliskipulagi. Þar sem deiliskipulag gerir ekki ráð fyrir kjöllurum þarf að breyta skilgreiningum á hæðum og kalla þá hæð sem nú er sótt um 1.hæð o.s.f.v. Í deiliskipulag er kveðið á um að 1 íbúð skuli vera í húsinu. Sýna þarf á uppdrætti að innangengt sé á milli 1.hæðar og 2.hæðar.(óuppfyllts rýmis og 1.hæðar skv samþykktum teikningum)
Í umsókn um byggingarleyfi er sótt um tegund byggingar sem íbúðar og gistihús. Ekki er hægt að fallast á að húsið sé skilgreint sem gistihús og skal öll sala á gistingu í húsinu vera innan ákvæða um heimagistingar sbr.lög um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.85/2007.