Mikill ágangur máva í Sjálandshverfi
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
9 (22-26). fundur
Garðabær stóð fyrir fræðslu- og upplýsingafundi fyrir íbúa bæjarins í Sjálandsskóla 12. apríl 2023. Markmið fundarins samræmist ráðleggingum Náttúrufræðistofnunar um upplýsingagjöf og fræðslu til íbúa í þeirri von að þeir geti búið í námunda við Gálgahraun og Arnarnesvog í sátt og samlyndi við náttúruna sem þar er. Fundurinn var vel sóttur af íbúum þar sem um 140 manns mættu.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
02
11. (2018). fundur
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að leita eftir heimild umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra fyrir undanþágu til að grípa til aðgerðar til að fækka mávum í friðlandi Gálgahrauns.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
42. fundur
Skoðaðar hafa verið margar leiðir til að fækka mávum. Í vor verður stungið á mávaegg til að ýta varpinu til baka inn í Gálgahraunið. Meindýraeyðir hefur bent á að íbúar geti sett veifur á þök húsa sinna til að reyna að fæla mávana frá.