Beint í efni

40. fundur

08.03.2022
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

40. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

08.03.2022

Kl. 16:15 - 17:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 2202184

01

Uppbygging aðstöðu við Breiðumýri

Halldór Valberg Skúlason, félagsforingi Skátafélagsins Svana og Jónatan Smári Svavarsson, verkfræðingur og skáti, mættu á fundinn og fóru yfir starf félagsins á Álftanesi og hugmyndir þeirra að „Mannlífsmiðstöð skáta á Álftanesi“.

Skátafélagið er í dag með aðstöðu á Bjarnastöðum en um 100 skátar á aldrinum 8 til 25 ára eru í félaginu. Gerðu þeir grein fyrir þeirri sýn skátanna að hafa jákvæð áhrif á einstaklinga í óvægnum heimi og hjálpa þeim að þroskast með því að fá ábyrgð og takast á við ögrandi verkefni í góðum hópi. Jafnframt gerðu þeir grein fyrir þeirri skoðun sinni að breytt þjóðfélag kalli á breyttar áherslur í skátastarfi og samstarf við aðra hópa óháð aldri.

Hugmyndir Skátafélagsins varðandi Mannlífsmiðstöðina er að hún verði staðsett vestan við íþróttavöllinn við Breiðumýri á sama stað og skátarnir höfðu áður aðstöðu. Horfa þeir til þess að um verði að ræða 300 -500 fm hús en þarfagreining og forhönnun mun leiða ljós endanlega stærð. Áætlun þeirra varðandi kostnað við undirbúning Mannlífsmiðstöðvar sem felst í þarfagreiningu, aðlögun á nærumhverfi, samtali við hagaðila, jarðvegskannanir, arkitekta- og verkfræðitekningar áamt verkefnastjórn hljóðar upp á 35-45 milljónir.

ÍTG lýsir yfir ánægju sinni með áherslur Skátafélagsins Svana og leggur til að málið verði skoðað nánar m.a. með tilliti til fjármögnunar.

Málsnúmer 2101067

02

Hvatapeningar 2021

Samantekt íþrótta-, tómstunda og forvarnarfulltrúa á nýtingu hvatapeninga 5-18 ára barna í Garðabæ liggur fyrir. Alls var úthlutað 137.032.405 krónum til 2804 einstaklinga af þeim 3648 sem rétt höfðu, eða 77%.

Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúi lagði fram skýrslu um nýtingu hvatapeninga ársins 2021. Alls áttu 3648 börn rétt á að nýta sér hvatapeninga árið 2021, en þau voru 3629 árið 2020. Drengir voru 1842, stúlkur 1806 og stálp 1 (Hagstofa Íslands). Heildarúthlutun var 137.032.405,- kr. 2804 af 3648 börnum nýttu sér rétt sinn til hvatapeninga árið 2021, eða 77% sem er 4 prósentustigum meira en 2020. Nánar er fjallað um nýtinguna í skýrslunni.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2201437

03

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021

ÍTG fagnar að í könnuninni kemur fram aukin ánægja með aðstöðu til íþróttaiðkunar í bæjarfélaginu. Mikilvægt er að skoða niðurstöðurnar til að bæta þar sem óánægju gætir.

Málsnúmer 2106128

04

Aðgerðaráætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreiti.

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer 2201383

05

Samstarfssamningur skíðasvæði - Bókun 535. fundar SSH

Formaður upplýsti um stöðuna á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins og útskýrði verkferla og verksvið samstarfsnefndarinnar samkvæmt samstarfssamningnum ásamt því að gera grein fyrir þjónustusamningi við ÍTR. Jafnframt upplýsti formaður um stöðuna varðandi uppbyggingu og framkvæmdir á skíðasvæðunum.

ÍTG samþykkir drög að þeim samstarfssamningi sem liggur fyrir.

Önnur mál:
Farið var yfir stöðu framkvæmda í Miðgarði
- Unnið er að merkingum innandyra
- Unnið er að uppsetningu klifurveggjar
- Unnið er að gólfefni og uppsetningu tækja í þreksal í samvinnu við lyftingadeild Stjörnunnar
- Unnið er að ýmsum loka frágangi s.s. flísalögn og stýringum í hússtjórnarkerfi fyrir ljós og hita.
- Búið er að ráða 5 starfsmenn sem vinna á vöktum.
- Opnunartími er frá 8:00-22:00 virka daga og 9:00-18:00 laugardaga og sunnudaga.