Uppbygging aðstöðu við Breiðumýri
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
40. fundur
Halldór Valberg Skúlason, félagsforingi Skátafélagsins Svana og Jónatan Smári Svavarsson, verkfræðingur og skáti, mættu á fundinn og fóru yfir starf félagsins á Álftanesi og hugmyndir þeirra að „Mannlífsmiðstöð skáta á Álftanesi“.
Skátafélagið er í dag með aðstöðu á Bjarnastöðum en um 100 skátar á aldrinum 8 til 25 ára eru í félaginu. Gerðu þeir grein fyrir þeirri sýn skátanna að hafa jákvæð áhrif á einstaklinga í óvægnum heimi og hjálpa þeim að þroskast með því að fá ábyrgð og takast á við ögrandi verkefni í góðum hópi. Jafnframt gerðu þeir grein fyrir þeirri skoðun sinni að breytt þjóðfélag kalli á breyttar áherslur í skátastarfi og samstarf við aðra hópa óháð aldri.
Hugmyndir Skátafélagsins varðandi Mannlífsmiðstöðina er að hún verði staðsett vestan við íþróttavöllinn við Breiðumýri á sama stað og skátarnir höfðu áður aðstöðu. Horfa þeir til þess að um verði að ræða 300 -500 fm hús en þarfagreining og forhönnun mun leiða ljós endanlega stærð. Áætlun þeirra varðandi kostnað við undirbúning Mannlífsmiðstöðvar sem felst í þarfagreiningu, aðlögun á nærumhverfi, samtali við hagaðila, jarðvegskannanir, arkitekta- og verkfræðitekningar áamt verkefnastjórn hljóðar upp á 35-45 milljónir.
ÍTG lýsir yfir ánægju sinni með áherslur Skátafélagsins Svana og leggur til að málið verði skoðað nánar m.a. með tilliti til fjármögnunar.
Bæjarráð Garðabæjar
02
6. (2013). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu á þessu stigi til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs.