Beint í efni

Hvatapeningar 2021

Málsnúmer 2101067

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

40. fundur

Samantekt íþrótta-, tómstunda og forvarnarfulltrúa á nýtingu hvatapeninga 5-18 ára barna í Garðabæ liggur fyrir. Alls var úthlutað 137.032.405 krónum til 2804 einstaklinga af þeim 3648 sem rétt höfðu, eða 77%.

Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúi lagði fram skýrslu um nýtingu hvatapeninga ársins 2021. Alls áttu 3648 börn rétt á að nýta sér hvatapeninga árið 2021, en þau voru 3629 árið 2020. Drengir voru 1842, stúlkur 1806 og stálp 1 (Hagstofa Íslands). Heildarúthlutun var 137.032.405,- kr. 2804 af 3648 börnum nýttu sér rétt sinn til hvatapeninga árið 2021, eða 77% sem er 4 prósentustigum meira en 2020. Nánar er fjallað um nýtinguna í skýrslunni.

Fylgiskjöl

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

28. fundur

Bæjarráð hefur staðfest óbreyttar reglur um úthlutun Hvatapeninga fyrir árið 2021 að upphæð 50.000,- kr fyrir börn frá og með 5 ára, til og með 18 ára.

Reglur um hvatapeninga 2021 lagðar fram og ræddar.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

1. (1959). fundur

Bæjarráð samþykkir reglur um hvatapeninga til að gilda á árinu 2021.

Bæjarstjóri sagði frá því að verið er að skoða möguleika á greiða viðbót við hvatapeninga vegna fjölda systkina og koma þannig á móts við barnafjölskyldur.

Fylgiskjöl