1. (1959). fundur
1. (1959). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
12.01.2021
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Hildigunnur Árnadóttir - yfirfélagsráðgjafi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnað samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 1076/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. nóvember 2020.
Dagskrá
Málsnúmer 2009056
01
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2020.
Á fund bæjarráðs mætti Matthías Þorvaldsson, starfsmaður GI rannsókna ehf. og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal íbúa Garðabæjar á árinu 2020. Í öllum meginatriðum er niðurstaðan jákvæð í helstu málaflokkum og íbúar í heildinna litið ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í. Bæjarráð samþykkir að vísa þjónustukönnuninni til umfjöllunar nefnda.
Bæjarfulltrúarnir, Sara Dögg Svanhildardóttir, Jóna Sæmundsdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir sátu bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2001444
02
COVID-19 neyðarstig almannavarna.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir að ný reglugerð um takmörkun á samkomum tekur gildi á morgun 13. janúar þar sem fjöldatakmarkanir miðast við 20 manns í stað 10 manns. Heilsu- og líkamsræktarstöðvum verður gert kleift að hefja starfsemi á ný en með ströngum skilyrðum og skíðasvæðunum sömuleiðis. Íþróttastarf barna og fullorðinna verður heimilað að uppfylltum skilyrðum og sömuleiðis íþróttakeppnir án áhorfenda. Áformað er að breytingarnar gildi til 17. febrúar.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og yfirfélagsráðgjafi gerðu grein fyrir stöðu mála á sínum sviðum.
Málsnúmer 2011208
03
Heiðarlundur 18 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Theódór Hjalta Valssyni, kt. 290473-5789, leyfi til að byggja við núverandi hús að Heiðarlundi 18.
Málsnúmer 1906191
04
Hraungata 8 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Bergi Haukssyni, kt. 280962-3419, leyfi til að byggja sólskála við einbýlishúsið að Hraungötu 8.
Málsnúmer 2011161
05
Kinnargata 27 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Byggi Sig ehf., kt. 650619-1290, leyfi til að byggja parhús að Kinnargötu 27.
Málsnúmer 2011278
06
Kinnargata 29 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Byggi Sig ehf., kt. 650619-1290, leyfi til að byggja parhús að Kinnargötu 29.
Málsnúmer 2011195
07
Skrúðás 15 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lindu Margréti Stefánsdóttur, kt. 270569-5799, leyfi til að byggja gufubað o.fl. á þakgarði hússins að Skrúðási 15.
Málsnúmer 2101068
08
Urðargata 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK bygg ehf., kt. 560916-1830, leyfi til að byggja raðhús að Urðargötu 1.
Málsnúmer 2101095
09
Urðargata 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK bygg ehf., kt. 560916-1830, leyfi til að byggja raðhús að Urðargötu 3.
Málsnúmer 2101069
10
Urðargata 5 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK bygg ehf., kt. 560916-1830, leyfi til að byggja raðhús að Urðargötu 5.
Málsnúmer 2012330
11
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um græna atvinnubyltingu, 360. mál., dags. 18.12.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 2012336
12
Bréf Krabbameinsfélagsins varðandi styrk, dags. 22.12.20.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2021.
Málsnúmer 2012379
13
Áskorun til sveitarfélaga um skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis í skólum, dags. 29.12.20.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir þróun á framboði matar í skólunum og sagði frá að kallað er eftir framboði á fjölbreyttu fæði.
Bæjarráð vísar áskoruninni til umfjöllunar skólanefndar, leikskólanefndar og ungmennaráðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2012394
14
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um Grænbók um byggðamál, dags. 29.12.20.
Lögð fram.
Málsnúmer 2009024
15
Samningur við AÍ og keppnislýsing vegna samkeppni um hönnun nýs leikskóla í Urriðaholti.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1903039
16
Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um fund í vinnuhópi um heimsmarkmiðin, dags. 03.12.20.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir undirbúningi og vinnu við innleiðingu heimsmarkmiðanna Garðabæ.
Minnisblaðið lagt fram.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1912313
17
Tilkynning frá Jöfnunarsjóði um framlög 2020.
Málsnúmer 2011231
18
Umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um drög að viðbótum við landsskipulagsstefnu 2015-2020, dags. 30.12.20.
Lögð fram og vísað til kynningar í skipulagsnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2101067
19
Reglur um hvatapeninga árið 2021.
Bæjarráð samþykkir reglur um hvatapeninga til að gilda á árinu 2021.
Bæjarstjóri sagði frá því að verið er að skoða möguleika á greiða viðbót við hvatapeninga vegna fjölda systkina og koma þannig á móts við barnafjölskyldur.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2006130
20
Tillaga um viðmiðunarfjárhæðir vegna niðurfellingar eða lækkunar fasteignaskatts og fráveitugjalds elli- og örorkulífeyrisþega.
Eftirfarandi tillaga samþykkt.
Einstaklingar:
Einstaklingar með tekjur árið 2019 allt að kr. 5.600.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald.
Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 5.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 6.100.000.
Hjón:
Hjón með tekjur árið 2019 allt að kr. 7.140.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 13.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 8.440.000.
Málsnúmer 2006130
21
Gjaldskrá stuðningsþjónustu í Garðabæ.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá um stuðningsþjónustu í Garðabæ þar sem gert er ráð fyrir 2,5% hækkun gjaldaliða í stað hækkunar samkvæmt breytingum á launavísitölu sem er 7,3% eins og gert er ráð fyrir í núgildandi reglum.
Málsnúmer 2101136
23
Bréf Samtaka iðnaðarins varðandi boðaðar breytingar á gjaldskrá Sorpu bs., dags. 22.12.20.
Bæjarráð telur eðlilegt að bréfið komi til umfjöllunar í eigendahópi Sorpu bs. og stjórn félagsins.