31. fundur
31. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
12.05.2021
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Erna Ingibjörg Pálsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Hjörtur Jónsson - fulltrúi foreldra
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
- Hildur Björg Jónsdóttir - fulltrúi kennara
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Vegna forfalla fulltrúa og varafulltrúa kennara hafa þeir óskað eftir að fulltrúi þeirra Hildur B. Jónsdóttir grunnskólakennari sitji fundinn. Nefndarmenn samþykkja aðkomu hennar á fundinn og minna á að viðkomandi er eins og nefndarmenn bundinn þagnarskyldu um þau mál sem eru til umræðu.
Dagskrá
Málsnúmer 2101177
01
Erindi foreldra til skólanefndar.
Farið yfir erindið. Rætt um hlutvek og lögbundnar skyldur skólanefndar. Skólanefnd samþykkir að fela bæjarritara að svara erindinu.
Málsnúmer 2010507
02
Kórónaveira-COVID 19, staðan í grunnskólum
Farið yfir stöðuna í grunnskólum og fyrirkomulag bólusetninga starfsfólks. Skólanefnd leggur til að skólafólk grunnskólanna eigi faglegt samtal um þær áskoranir og tækifæri í skólastarfi á tímum Covid og nýti til frekari skólaþróunar. Skólanefnd þakkar starfsfólki grunnskóla bæjarins fyrir fagmennsku og lausnarmiðað starf.
Málsnúmer 2012042
03
Skólastefna Garðabæjar 2020
Farið yfir stöðu á vinnu við endurskoðun nýrrar skólastefnu. Vinna við endurskoðun stefnunnar er skv. áætlun.
Málsnúmer 2105111
04
Niðurstöður 2021 - Rannsóknir og greining
Lagt fram til kynningar.