Beint í efni

Kórónaveira-COVID 19, staðan í grunnskólum

Málsnúmer 2010507

Ferill máls

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

01

38. fundur

Staðan í grunnskólum kynnt. Mikil veikindi hafa verið hjá nemendum og starfsfólki en tekist hefur að halda úti nánast fullu skólastarfi í öllum skólum í Garðabæ. Skólanefnd þakkar starfsfólki grunnskólanna þrautseigju, ústjónarsemi og dugnað á þessum flóknu tímum.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

37. fundur

Farið yfir stöðuna í grunnskólum Garðabæjar. Skólanefnd þakkar starfsfólki grunnskóla fyrir þrautseigju og dugnað í störfum sínum.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

03

36. fundur

Farið yfir stöðuna í grunnskólum Garðabæjar síðustu vikur. Skólanefnd þakkar starfsfólki grunnskóla bæjarins fyrir fagmennsku og þrautseigju í störfum sínum.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

04

33. fundur

Grunnskólafulltrúi ræddi upphaf grunnskólastarfs á tímum kórónaveirunnar og þær ráðstafanir sem grunnskólar í Garðabæ hafa gripið til. Grunnskólarnir fylgja viðmiðum Almannavarna höfuðborgarsvæðisins sem gilda til 1. október nk.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

05

31. fundur

Farið yfir stöðuna í grunnskólum og fyrirkomulag bólusetninga starfsfólks. Skólanefnd leggur til að skólafólk grunnskólanna eigi faglegt samtal um þær áskoranir og tækifæri í skólastarfi á tímum Covid og nýti til frekari skólaþróunar. Skólanefnd þakkar starfsfólki grunnskóla bæjarins fyrir fagmennsku og lausnarmiðað starf.