33. fundur
33. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
25.08.2021
Kl. 16:00 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Ágúst Frímann Jakobsson - fulltrúi skólastjóra
- Ásta Kristín Ingólfsdóttir - fulltrúi kennara
- Hjörtur Jónsson - fulltrúi foreldra
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2108323
01
Ársskýrslur grunnskóla 2020-2021
Lagðar voru fram skólaskýrslur grunnskólanna skólaársins 2020-2021. Skólanefnd færir þakkir til skólafólks fyrir fagleg og vel unnin störf við gerð skýrslnanna, þær bera bera vott um metnaðarfullt og gott skólastarf auk þess sem þær eru mikilvæg heimild og tæki til stefnumótunar í skólastarfinu.
Málsnúmer 2106601
02
Skólapúlsinn - niðurstöður skólaárið 2020-2021
Niðurstöður Skólapúlsins fyrir skólaárið 2020-2021 lagðar fram til kynningar.
Málsnúmer 2108322
03
Skólabyrjun 2021-2022. fjöldi nemenda og fleiri upplýsingar.
Rædd var skólabyrjun skólaársins 2021-2022. Á ágúst hófu 2551 nemandi nám við grunnskólana í Garðabæ. 2329 við bæjarskólana og 222 í sjálfstætt starfandi skólum. 231 nemandi hófu nám í 1. bekk grunnskólanna. Skólanefnd leggur áherslu á mikilvægi traustrar stoðþjónustu og lýsa ánægju sinni með að allar stöður skólahjúkrunarfræðinga séu fullmannaðar við upphaf skólaársins.
Málsnúmer 2010507
04
Kórónaveira-COVID 19, staðan í grunnskólum
Grunnskólafulltrúi ræddi upphaf grunnskólastarfs á tímum kórónaveirunnar og þær ráðstafanir sem grunnskólar í Garðabæ hafa gripið til. Grunnskólarnir fylgja viðmiðum Almannavarna höfuðborgarsvæðisins sem gilda til 1. október nk.
Málsnúmer 2012042
05
Skólastefna Garðabæjar 2020
Formaður ræddi stöðu á vinnu við endurskoðun nýrrar skólastefnu. Vinna við endurskoðun er skv. áætlun.