30. fundur
30. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
14.04.2021
Kl. 16:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Erna Ingibjörg Pálsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Silja Kristjánsdóttir - fulltrúi kennara
- Hjörtur Jónsson - fulltrúi foreldra
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Dagskrá
01
Niðurstöður samræmdra könnunarprófa 2019-2021
Skólastjórar grunnskólanna kynntu niðurstöður samræmdra prófa. Heilt yfir eru grunnskólar bæjarins yfir landsmeðaltali. Skólanefnd fagnar góðum árangri en lýsir jafnframt áhyggjum af framkvæmd samdræmdu prófanna í 9.bekk.
02
Skólastefna Garðabæjar 2020
Farið var yfir stöðu á vinnu við endurskoðun nýrrar skólastefnu. Vinna við endurskoðun er skv. áætlun.
03
Tillaga skólanefndar grunnskóla til bæjarráðs vegna úthlutunar 2021 úr þróunarsjóði grunnskóla
Á fundi bæjarráðs 30.mars sl. var staðfest tillaga skólanefndar um úthlutun styrkja sbr. 4. gr. reglna um þróunarsjóð grunnskóla. Lagt fram til kynningar.
04
Áskorun til sveitarfélaga um að nota innlend matvæli í skólamáltíðir
Áskorun frá Bændasamtökum Íslands lögð fram til umfjöllunar. Í grunnskólum Garðabæjar er lögð áhersla á fjölbreytt og hollt fæði.
05
Skólamatur í grunnskólum
Farið yfir stöðu Skólamatar í grunnskólum. Fræðslustjóri leggur fram tillögu um að gengið verði til samninga við Skólamat um framlengingu á samningi í öllum grunnskólum Garðabæjar um eitt ár sbr. heimild í 4. grein samnings Garðabæjar við Skólamat. Skólanefnd samþykkir tillögu fræðslustjóra.
06
Ráðning skólastjóra
Farið yfir umsækjendur um stöðu skólastjóra við Sjálandsskóla og vinnuferli við ráðningu kynnt nefndarmönnum. Sesselja Þóra Gunnarsdóttir var ráðin skólastjóri Sjálandsskóla. Skólanefnd lýsir yfir ánægju með ráðninguna og óskar Sesselju til hamingju með starfið.