27. fundur
27. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
20.01.2021
Kl. 16:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Erna Ingibjörg Pálsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Silja Kristjánsdóttir - fulltrúi kennara
- Hjörtur Jónsson - fulltrúi foreldra
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Dagskrá
01
Kórónaveira-COVID 19
Farið yfir stöðuna í grunnskólum Garðabæjar síðustu daga og vikur og fyrirkomulag í skólum vegna gildandi sóttvarnarreglna. Lögð var fram samantekt skólaskrifstofu um skólastarf á tímum Covid á skólaárinu. Skólanefnd þakkar starfsfólki grunnskóla bæjarins fyrir fagmennsku og lausnarmiðað starf.
02
Þróunarsjóður grunnskóla 2021
Rætt um mögulegar áherslur sjóðsins. Kjörnum fulltrúum og skóladeild er falið að fullmóta tillögur.
03
Ráðning skólastjóra
Sesselja Þóra Gunnarsdóttir er settur skólastjóri frá 31.7. 2020 - 31.7.2021. Staðan verður auglýst í febrúar.
04
Skólastefna Garðabæjar 2020
Formaður kynnir undirbúning að endurskoðun menntastefnu.
05
Erindi til skólanefndar
Skólanefnd fór yfir erindið og ræddi. Málinu vísað til fræðslustjóra sem mun svara erindinu.