Kórónaveira-COVID 19
Ferill máls
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
01
27. fundur
Farið yfir stöðuna í grunnskólum Garðabæjar síðustu daga og vikur og fyrirkomulag í skólum vegna gildandi sóttvarnarreglna. Lögð var fram samantekt skólaskrifstofu um skólastarf á tímum Covid á skólaárinu. Skólanefnd þakkar starfsfólki grunnskóla bæjarins fyrir fagmennsku og lausnarmiðað starf.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
02
26. fundur
Farið yfir stöðuna og fyrirkomulag í grunnskólum Garðabæjar eftir að reglugerð um takmörkun á skólastarfi tók gildi 10. desember 2020. Skólanefnd þakkar skólafólki fyrir eljusemi, lausnarmiðuð og vel unnin störf.
Fylgiskjöl
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
03
24. fundur
Farið yfir stöðuna og fyrirkomulag í grunnskólum Garðabæjar eftir að reglugerð um takmörkun á skólastarfi tók gildi þann 3. nóvember 2020. Skólanefnd þakkar skólafólki fyrir lausnarmiðun og þrautseigju.
Fylgiskjöl
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
04
23. fundur
Farið yfir stöðuna í grunnskólum Garðabæjar síðustu daga og vikur og fyrirkomulag í skólunum vegna gildandi sóttvarnarreglna. Skólanefnd þakkar starfsfólki grunnskóla bæjarins fyrir fagmennsku og þrautseigju í störfum sínum.