23. fundur
23. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
Fjarfundur
08.10.2020
Kl. 16:15 - 18:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Erna Ingibjörg Pálsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Elín Jóhannsdóttir - fulltrúi foreldra
- Sigríður Guðrún Guðmundsdóttir - varamaður kennara
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Dagskrá
01
Skólahjúkrunarfræðingar í grunnskólum Garðabæjar
Dagskrárlið frestað þar til síðar á skólaárinu, þar sem fulltrúi heilsugæslunnar komst ekki á fundinn.
02
Menningarviðburðir í grunnskólum Garðabæjar 2020.
Ólöf Breiðfjörð, menningarfulltrúi Garðabæjar sagði fá menningarviðburðum sem nemendum í grunnskólum bæjarins verður boðið upp á, á skólaárinu. Skólanefndin lýsir ánægju sinni með metnaðarfulla dagskrá.
03
Fjárhagsáætlun 2021.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, kynnti vinnuferla við gerð fjárhagsáætlunar, stöðu vinnunnar og næstu skref.
04
Starfsáætlanir grunnskóla Garðabæjar 2020-2021
Starfsáætlanir grunnskólanna lagðar fram og kynntar. Skólanefnd lýsir ánægju sinni með vel unnar áætlanir. Rætt var að í grunnskólum eru áfallaáætlanir sem unnið er eftir þegar upp koma áföll. Fram kom að kirkjan vinnur mikilvægt starf með skólasamfélaginu þegar áföll koma upp sem er þakkarvert.
Fylgiskjöl
05
Kórónaveira-COVID 19
Farið yfir stöðuna í grunnskólum Garðabæjar síðustu daga og vikur og fyrirkomulag í skólunum vegna gildandi sóttvarnarreglna. Skólanefnd þakkar starfsfólki grunnskóla bæjarins fyrir fagmennsku og þrautseigju í störfum sínum.
06
Menntadagur í Garðabæ 2020
Rætt um fyrirhugaðan Menntadag Garðabæjar sem verður þann 23. október nk. Dagurinn verður rafrænn.
08
Orðagull- styrkumsókn
Erindi sem ber yfirskriftina Orðagull kynnt. Erindinu er vísað til fræðslusviðs.