Beint í efni

26. fundur

10.12.2020
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

26. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

10.12.2020

Kl. 08:15 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Erna Ingibjörg Pálsdóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Silja Kristjánsdóttir - fulltrúi kennara
  • Hjörtur Jónsson - fulltrúi foreldra
  • Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi

Ritari

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2010052

01

Kórónaveira-COVID 19

Farið yfir stöðuna og fyrirkomulag í grunnskólum Garðabæjar eftir að reglugerð um takmörkun á skólastarfi tók gildi 10. desember 2020. Skólanefnd þakkar skólafólki fyrir eljusemi, lausnarmiðuð og vel unnin störf.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2012042

02

Skólastefna Garðabæjar 2020

Formaður fór yfir hugmyndir að áherslum varðandi endurskoðun núverandi skólastefnu Garðabæjar og mikilvægi þess að stefnan verði unnin faglega og lýðræðislega með aðkomu skólanefndar grunnskóla, leikskólanefndar, skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar auk starfsmanna á fræðslu- og menningarsviði. Þá verða hagsmuna- og fagaðilar leik-, grunn- og tónlistarskóla boðaðir til samtals við vinnslu stefnunnar. Þá ræddi formaður um að tengja vinnuna við fyrirliggjandi áherslur og stefnur á sviðinu auk þess að tryggja hagnýtt gildi stefnunnar. Áætlað er að endurskoðun skólastefnu Garðabæjar, ljúki við lok árs 2021.

Málsnúmer 2012039

03

Samskiptaáætlanir og forvarnir

Farið yfir stöðuna varðandi vinnu við endurskoðun eineltis- og forvarnaráætlunar. Sagt frá fræðslu sem fyrirhuguð er fyrir skólasamfélagið.

Málsnúmer 2012040

04

Ytra mat - Álftanesskóli

Málsnúmer 2012041

05

Kynning og samtal við stjórnendur Álftanesskóla

Skólanefnd þakkar skólastjórnendum Álftanesskóla fyrir kynninga og lýsir ánægju með að kynnast skólanum og skólastarfinu með þessum hætti.