Beint í efni

Grenndargámar

Málsnúmer 1809099

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

16 (22-26). fundur

Snjallar grenndarstöðvar í Garðabæ. Settar hafa verið upp nýjar grenndarstöðvar þar sem gámarnir verða útbúnir snjallskynjurum sem tryggja tímanlega losun og eiga að fyrirbyggja fulla gáma. Umhverfisnefnd fagnar þessari nýjung í vöktun grenndargáma og hefur væntingar um að umgengni verði betri og íbúum bæjarins til sóma. Umhverfisnefnd leggur til að grenndarstöðvum verði fjölgað um að minnsta kosti eina stöð.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

42. fundur

Í skýrslu vinnuhóps um samræmingu úrgangs? á höfuðborgarsvæðinu er lögð áhersla á að bæta aðgengi að grenndargámastöðvum og að samræma úrgangsflokka á stöðvunum. Þá leggur starfshópurinn til að tvær gerðir af grenndargámastöðvum verði viðhafðar, hefðbundnar stöðvar (gler, málma, skilagjaldsskyldar umbúðir og textíl) sem þjónar 500 m radius og stærri stöðvar (gler, málma, skilagjaldsskyldar umbúðir og textíl ásamt pappír/pappa og plast.)sem þjóna 1000m radius. Þá kemur fram að fjölga þarf um tvær stöðvar í Garðabæ eina stóra stöð og eina minni.
Umhverfisnefnd leggur því áherslu á að fjölga stöðvum í sveitafélaginu og felur umhverfis og tæknisviði að finna staðsetningar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

12. fundur

Lagt fram minnisblað dags. 7. september 2018. Skipulagsnefnd hvetur til þess að í allri þeirri skipulagsvinnu sem framundan er að horft verði til þess að auka flokkun á sorpi, hvort sem það er í djúpgámum eða á grenndargámastöðvum.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

04

3. fundur

Minnisblað lagt fram og samþykkt að koma upp grendargámastöð við Hofstaðaskóla á árinu og í framhaldinu við Sjálandsskóla.