3. fundur
3. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í endanum 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
11.09.2018
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
- Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
01
Strætóskýli
Minnisblað lagt fram. Umhverfisnefnd leggur til að sett verði inn á fjárhagsáætlun 2019 að endurnýja biðskýlin við Ásgarð og að endurnýjuð verði 4 skýli á ári.
02
Grenndargámar
Minnisblað lagt fram og samþykkt að koma upp grendargámastöð við Hofstaðaskóla á árinu og í framhaldinu við Sjálandsskóla.
03
Hleðslustöð fyrir rafbíla
Minnisblað lagt fram og lagt til að unnið verði eftir því við uppbyggingu innviða fyrir rafbíla.
05
Mengunarmælingar 2018
Mengunarmælingar lagðar fram og málið rætt. Umhverfisnefnd leggur áherslu á að vöktunaráætlun fyrir Arnarneslæk verði fylgt eftir af festu.
07
Starfsskýrsla skógræktarfélags Garðabæjar 2017-2018
Skýrslan lögð fram. Ánægja með öflugt starf skógræktarfélagsins.
09
Plastlaus september
Vakin er athygli á að plastflokkunin hefur gengið vel en betur má ef duga skal.
11
Gróðursetningar 2018 í Garðabæ
Farið yfir gróðursetningaáætlun Garðabæjar fyrir haustið.
12
Hjóla og gönguteljari
Umhverfisnefnd samþykkir að settur verði upp gönguteljari við Vífilstaðavatn. Einnig að unnið verðir áfram með hinum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu við uppsetningu á hjólateljurum á samgöngustígum og að bætt verði við öðrum teljara á næsta ári.