Umsóknir um utanvegahlaup/hjól
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
3 (22-26). fundur
Viðburðir í bæjarlandi eru ávalt háðir leyfi Garðabæjar. Umhverfisnefnd ítrekar að skipulagðir viðburðir kringum Vífilsstaðarvatn, sem er friðland eru ekki heimilir. Möguleiki er að heimila þá á stígnum suðvestan við vatnið í samráði við Garðabæ og að uppfylltum skilyrðum.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
42. fundur
Umhverfisnefnd leggur áherslu á að skipulagðir viðburðir séu háðir leyfi sveitafélagsins.
Skipulagðir viðburðir í Friðlandi og þá sérstaklega við Vífilsstaðarvatn þar sem viðkvæmt lífríki er, skulu ekki heimilir norðan við vatnið, aðeins sunnan við vatnið utan varptíma, þó háð leyfi Garðabæjar. Þá er ekki heimilt að teppa bílastæði við Vífilsstaðarvatn fyrir aðstöðusköpun vegna viðburða og passa þarf uppá að aðgengi að bílastæðum sé fyrir gesti friðlandsins.
Vinna við rafrænt umsóknarkerfi er langt komin og er stefnt á að það verði tekið í notkun í mars.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
36. fundur
Ásta Leifsdóttir og Linda Björk Jóhannesdóttir fóru yfir hvernig utanvegahlaup gengu í sumar. Ágangur og umstang var mikið sem svæðið í kringum Vífilsstaðavatn þolir illa þar sem fjöldi gesta sækir friðlandið á hverjum degi. Umhverfisnefnd leggur áherslu á að verndunar og stjórnunaráætlun verði unnin fyrir svæðið.