Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn lóðarhafa að Hraunhólum 7 um aðkomu að neðri hæð hússins frá Lynghólum.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
26. (2079). fundur
Lagður fram tölvupóstur lóðarhafa að Hraunhólum 7, dags. 30. júní 2023 þar sem afgreiðslu skipulagsnefndar er mótmælt.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar um að synja umsókn lóðarhafa að Hraunhólum 7 um breytingu á deiliskipulagi er varðar að heimila aðkomu að lóðinni frá Lynghólum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
9. fundur
Lögð fram fyrirspurn eiganda íbúðar á neðri hæð að Hraunhólum 7 um það hvort heimiluð yrði aðkoma fyrir akandi umferð að lóðinni frá Lynghólum sem auðveldaði aðgengi að íbúð á neðri hæð. Yrði þá gert ráð fyrir bílastæði innan lóðar.
Svar skipulagsnefndar: Fyrirspurn þessa efnis hefur verið til umfjöllunar hjá skipulagsyfirvöldum í Garðabæ áður. Skipulagsnefnd mælir ekki með því að aðkoma verði frá Lynghólum enda hefur deiliskipulag Hraunsholts eystra gert ráð fyrir því að aðkoma og bílastæði séu Hraunhólamegin. Íbúar við Lynghóla hafa komið því á framfæri við umhverfissvið að andstaða sé í þeirra hópi við aðkomu að lóðinni þeim megin.
Svar skipulagsnefndar er því neikvætt.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
8. fundur
Lagt fram erindi eiganda Hraunhóla 7 þar sem óskað er eftir því að aðkoma að lóðinni verði heimiluð frá Lynghólum.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.