Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
28. (2081). fundur
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. júní 2023, um breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar. Tillagan gerir fyrir að afmörkun deiliskipulagsins breytist til samræmis við nýtt deiliskipulag Vífilsstaðahrauns og nýtt deiliskipulag fyrir Urriðavatnsdali.
Tillagan var auglýst 9. febrúar 2023 ásamt tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar var til 11. maí 2023. Athugasemdir og umsagnir við tillögurnar voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 22. maí 2023. Umsögn um athugasemdir liggur fyrir.
Vegna umsagnar Landsnets er eftirfarandi ákvæðum bætt við í kafla 4.15 í greinargerð tillögunnar. „Hafa skal samráð við Landsnet um allar framkvæmdir í grennd við raflínur og mannvirki tengd þeim. Háspennulínur eru á vegum Landsnets sem fer með öll málefni sem þær varðar. Upplýsa skal Landsnet ef vinna er fyrirhuguð nærri spennuhafa háspennulínu og ekki má hefja vinnu nálægt flutningsvirki í rekstri nema fyrir liggi heimild frá fyrirtækinu. Sérstaka aðgát skal hafa við vinnu nærri eða undir spennuhafa háspennulína og tryggja skal að framkvæmdir ógni ekki afhendingaröryggi rafmagns." Helgunarsvæði raflína er þar að auki bætt við á deiliskipulagsuppdrátt.
Vegna athugasemdar Skógræktarfélags Garðabæjar er lögð til ný lega lóðar og byggingarreits fyrir aðstöðu félagsins undir Sandahlíð.
Athugasemdir og umsagnir kalla ekki að öðru leyti á breytingar á auglýstri tillögu.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarráðs auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Heiðmerkur og Sandahlíðar að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa ásamt drögum að greinargerð þar sem að viðbrögð og svör Garðabæjar við þeim er að finna.
Varðandi athugasemdir hestamannafélaganna Spretts og Sörla þá bendir skipulagsnefnd á að deiliskipulag Heiðmerkur gerir ráð fyrir reiðstígum sem hafa ekki enn verið lagðir og því er beint til umhverfissviðs að huga að framkvæmd þeirra.
Í athugasemdum Skógræktarfélags Garðabæjar er gerð athugasemd við legu lóðar og byggingarreits fyrir aðstöðu félagsins undir Sandahlíð. Skipulagsstjóri og deiliskipulagshöfundur leggja til nýja legu við mörk skógræktarsvæðis og hesthúsabyggðar sem hefur verið unnin í samráði við stjórn skógræktarfélagsins. Skipulagsnefnd er samþykk þeirri breytingartillögu.
Vegna umsagnar Landsnets er eftirfarandi ákvæðum bætt við kafla 4.11 greinargerðar deilskipulagsins: “Háspennulínur eru á vegum Landsnets sem fer með öll málefni sem þær varðar. Upplýsa skal Landsnet ef vinna er fyrirhuguð nærri spennuhafa háspennulínu og ekki má hefja vinnu nálægt flutningsvirki í rekstri nema fyrir liggi heimild frá fyrirtækinu. Sérstaka aðgát skal hafa við vinnu nærri eða undir spennuhafa háspennulína og tryggja skal að framkvæmdir ógni ekki afhendingaröryggi rafmagns." Færa skal inn legu og helgunarsvæði Hamraneslínu á deiliskipulagsuppdrátt til samræmis við Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030.
Samkomulag hefur náðst um stafestingu á landamerkjum Vífilsstaða og Urriðakots og falla mörk friðlýsingar og deiliskipulags Urriðavatnsdala og Heiðmerkur nú að þeim mörkum. Liggja mörkin að mestu leyti í legu núverandi stofnstígs undir Vífilsstaðahlíð.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindum breytingum sem breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
7. fundur
Tillaga að breytingu deiliskipulags Heiðmerkur og Sandahlíðar lögð fram að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
04
7 (22-26). fundur
Skipulagsstjóri ásamt Þráni Haukssyni landslagsarkitekt kynntu tillögu að breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur er varða reiðstíga og deiliskipulagsmörk. Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
18. (914). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Lagðar eru til eftirfarandi breytingar á deiliskipulaginu:
-Afmörkun deiliskipulagsins breytist vegna nýs deiliskipulags að vestan og sunnanverðu. Stærð skipulagsins breytist úr 907 ha í 887 ha.
-Gert er ráð fyrir nýrri lóð og byggingarreit fyrir aðstöðu Skógræktarfélags Garðabæjar í Sandahlíð.
-Bílastæði við Vífilsstaðahlíð við Maríuvelli færast yfir í deiliskipulag Vífilsstaðahrauns en áfram er gert ráð fyrir gönguleiðum frá því. Aðkomusvæði við suðausturenda Vífilsstaðahlíðar er innan friðlýsingar Búrfellsgjár og nágrennis og mun tilheyra deiliskipulagi þess þegar þar að kemur. Bílastæði vestan Vífilsstaðahlíðar við trjásýnireit og bílastæði við upphaf línuvegar færast yfir í deiliskipulag fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum.
-Lega reiðleiða og stíga endurskoðuð.
-Deiliskipulagsuppdráttur og viðeigandi myndir í greinargerð uppfærðar.
Samhliða verður auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030, sbr. samþykkt bæjarstjórnar á fundi 3. nóvember 2022.“ [Mál nr. 2210531]
Bæjarráð Garðabæjar
06
45. (2052). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Lagðar eru til eftirfarandi breytingar á deiliskipulaginu:
-Afmörkun deiliskipulagsins breytist vegna nýs deiliskipulags að vestan og sunnanverðu. Stærð skipulagsins breytist úr 907 ha í 887 ha.
-Gert er ráð fyrir nýrri lóð og byggingarreit fyrir aðstöðu Skógræktarfélags Garðabæjar í Sandahlíð.
-Bílastæði við Vífilsstaðahlíð við Maríuvelli færast yfir í deiliskipulag Vífilsstaðahrauns en áfram er gert ráð fyrir gönguleiðum frá því. Aðkomusvæði við suðausturenda Vífilsstaðahlíðar er innan friðlýsingar Búrfellsgjár og nágrennis og mun tilheyra deiliskipulagi þess þegar þar að kemur. Bílastæði vestan Vífilsstaðahlíðar við trjásýnireit og bílastæði við upphaf línuvegar færast yfir í deiliskipulag fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum.
-Lega reiðleiða og stíga endurskoðuð.
-Deiliskipulagsuppdráttur og viðeigandi myndir í greinargerð uppfærðar.
Samhliða verður auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030, sbr. samþykkt bæjarstjórnar á fundi 3. nóvember 2022.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
12. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Heiðmerkur og Sandahlíðar.
Lagðar eru til eftirfarandi breytingar á deiliskipulaginu:
-Afmörkun deiliskipulagsins breytist vegna nýs deiliskipulags að vestan og sunnanverðu. Nýtt deiliskipulag Vífilsstaðahrauns mun ná yfir Flóttamannaveg og er afmörkun aðlöguð að því. Samkomulag hefur náðst um eignalínu milli Heiðmerkur og landeigenda Urriðavatnslands og er afmörkun aðlöguð að því. Stærð skipulagsins breytist úr 907 ha í 887 ha.
-Gert er ráð fyrir nýrri lóð og byggingarreit fyrir aðstöðu Skógræktarfélags Garðabæjar í Sandahlíð. Gert er ráð fyrir um 100 m2 húsi með heilsársstarfsemi.
-Bílastæði við Vífilsstaðahlíð við Maríuvelli færast yfir í deiliskipulag Vífilsstaðahrauns en áfram er gert ráð fyrir gönguleiðum frá því. Aðkomusvæði við suðausturenda Vífilsstaðahlíðar er innan friðlýsingar Búrfellsgjár og nágrennis og mun tilheyra deiliskipulagi þess þegar þar að kemur. Bílastæði vestan Vífilsstaðahlíðar við trjásýnireit og bílastæði við upphaf línuvegar færast yfir í deiliskipulag fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum.
-Lega reiðleiða og stíga endurskoðuð. Nýr reiðstígur frá Grunnuvatnaskarði austan Ljóskollulágar og niður Vífilsstaðahlíð yfir á reiðleið í Búrfellshrauni vestan við Heiðmerkurveg.
-Deiliskipulagsuppdráttur og viðeigandi myndir í greinargerð uppfærðar.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Auglýsa skal tillögu samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær m.a. til stíga-og umferðarkerfis í Upplandi Garðabæjar, einnig samhliða tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns og tillögu að deiliskipulagi Útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum og tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
11. fundur
Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi gerði grein fyrir vinnu sem hefur farið fram við mótun tillögu að breytingu deiliskipulags Heiðmerkur til samræmis við tillögur sem eru í mótun á aðliggjandi svæðum og til samræmis við tillögu að breytingu aðalskipulags sem samþykkt hefur verið að auglýsa og er nú í athugun hjá Skipulagsstofnun.
Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og Umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
10. fundur
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir því að tillaga að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem nær til stígakerfis í upplandi og tillaga að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns og Útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum kalli á breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur.
Breytingartillaga þarf að gera ráð fyrir reiðstíg um Ljósakollulág frá Grunnavatnsskarði niður Vífilsstaðahlíð að reiðstíg í Urriðakotshrauni. Einnig þarf breytingartillagan að breyta deiliskipulagsmörkum að vestanverðu og laga hana bæði að staðfestum landamerkjum Vífilsstaða og Urriðakots sem og skipulagsmörkum tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum. Einnig að mörkum friðlands Búrfells, Búrfellsgjár og Selgjár. Stefnt er að því að tillaga verði lögð fyrir næsta fund skipulagsnefndar.