Beint í efni

Græni stígurinn - frumgreining til umsagnar

Málsnúmer 2306192

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

1. fundur

Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi gerði grein fyrir stöðu mála varðandi þróun á hugmyndum um legur Græna stígsins innan Garðabæjar og stöðu þeirra hugmynda í skipulagsáætlunum. Málinu vísað til mótunar vinnu við endurskoðun 4.kafla Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.

Bæjarráð Garðabæjar

02

48. (2101). fundur

Í bréfinu er upplýst um samþykkt frá fundi svæðisskipulagsnefndar sem haldinn var 8. desember 2023 þar sem bókuð var hvatning til aðildarsveitarfélaga um að innleiða legu græna stígsins í skipulagsáætlanir sveitarfélaganna.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

36. (2089). fundur

Lögð fram tilkynning frá svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins um framlengingu umsagnarfrests varðandi drög að frumgreiningu vegna legu græna stígsins til 9. október 2023.

Drög að frumgreiningu vegna legu græna stígsins hafa verið til umfjöllunar hjá skipulagsnefnd og umhverfinefnd. Fyrir liggja jákvæðar umsagnir og í bókun skipulagsnefndar kemur fram að gert er ráð fyrir legu stígsins í öllum þeim skipulagsáætlunum í Garðabæ sem hann varða. Í bókun umhverfisnefndar er líst ánægju með leið B „Græni stígurinn strax.“

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að taka undir bókanir skipulagsnefndar og umhverfisnefndar varðandi drög að frumgreiningu vegna legu græna stígsins.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

04

12 (22-26). fundur

Þráinn Hauksson,landslagsarkitekt frá Landslagi kynnti niðurstöður frumgreiningar á mögulegri legu græna stígsins í græna trefli höfuðborgarsvæðisins. Umhverfisnefnd líst vel á tillögu ráðgjafa að leið B, Græni stígurinn strax, verði tekinn til frekari skoðunar. Langtímamarkmið verði áfram að stefna að leið um samfelld útivistarsvæði ofan byggðar. Umhverfisnefnd þakkar greinargóða kynningu.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

05

11 (22-26). fundur

Til að geta sem best rýnt og gefið umsögn um verkefnið óskar umhverfisnefnd eftir að fá kynningu á niðurstöðu frumgreiningar á mögulegri legu græna stígsins í græna trefli höfuðborgarsvæðisins.



Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

9. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar styður heilshugar áætlanir um Græna stíginn og lýsir yfir ánægju með þá frumgreiningu sem lögð er fram. Nefndin bendir á að Garðabær gerir ráð fyrir stígnum í öllum þeim skipulagsáætlunum í Garðabæ sem hann varða.

Bæjarráð Garðabæjar

07

24. (2077). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.