Beint í efni

Sundabraut - Stofnbraut, nýr þjóðvegur í Reykjavík, nr. 0622/2023: Kynning tillögu á vinnslustigi (Breyting á aðalskipulagi)

Málsnúmer 2309496

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

17. fundur

Lögð fram drög að mögulegum breytingum á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna hönnunar og útfærslu Sundabrautar og umhverfismats framkvæmdarinnar. Um forkynningu skipulagsbreytinga er að ræða og á þessu stigi eru settir fram tveir megin valkostir um útfærslu Sundabrautar - brú eða göng um Kleppsvík- auk þess sem ýmis afbrigði hönnunarlausna eru sett fram á völdum köflum leiðarinnar. Fjallað er með ítarlegum hætti um þessa mismunandi kosti og hönnunarlausnir í umhverfiskýrslu framkvæmdarinnar, sem er kynnt samhliða (fylgiskjal II, Efla) og í umhverfismati VSÓ-ráðgjafar um áhrif aðalskipulagsbreytinga (fylgiskjal I). Að lokinni kynningu umhverfisskýrslu framkvæmdarinnar og forkynningu aðalskipulagsbreytinga, verður mótuð formleg tillaga að breytingu á aðalskipulagi, sem lýsir endanlegri legu og útfærslu Sundabrautar. Ákvörðun um endanlega útfærslu Sundabrautar í aðalskipulagi, mun m.a. byggja á niðurstöðum umhverfismatsins, sjónarmiðum sem koma fram í kynningarferlinu framundan og nánara samkomulagi borgar og ríkis.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir kynningarfundi 20. nóvember sl. sem haldinn var á vegum svæðisskipulagsstjóra þar sem farið var yfir tillögur að aðalskipulagsbreytingu og mati á umhverfisáhrifum. Á þeim fundi kom fram að þeir valkostir sem staðið er frammi fyrir varðandi brú eða göng undir Kleppsvík hefur ekki mismunandi áhrif á umferð um Hafnarfjarðarveg eða Reykjanesbraut.
Skipulagsnefnd hefur ekki ábendingar varðandi verkefnið á þessu stigi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

15. fundur

Málinu vísað til umsagnar umhverfissviðs.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

12. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugsemd við framlagða verkefnislýsingu.

Bæjarráð Garðabæjar

04

36. (2089). fundur

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.