Beint í efni

Vinastræti 22-28 - Deiliskipulag

Málsnúmer 2310097

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (939). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 11. apríl 2024, um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Tillagan gerir ráð fyrir að reisa félagsheimili Oddfellowreglunnar á lóð nr. 28. Lóð sem fyrir breytingu er lóð nr. 20-26 breytist í lóð nr. 20-24. Vestari hluti þeirrar lóðar verður sérstök lóð sem er ætluð undir bílastæði, en einnig verði heimilt að byggja bílakjallara á lóðinni.
Tillagan var auglýst 11. desember 2023 og var frestur til að gera athugasemdir við tillöguna til 24. janúar 2024. Athugasemdir voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 8. febrúar 2024. Á fundi skipulagsnefndar 11. apríl 2024 gerði skipulagsstjóri grein fyrir fundi með þeim sem gerðu athugasemdir, skipulagshöfundi og arkitektum, ásamt skuggavarpsteikningum.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.“ (Mál nr. 2310097)

Bæjarráð Garðabæjar

02

14. (2115). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 11. apríl 2024, um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Tillagan gerir ráð fyrir að reisa félagsheimili Oddfellowreglunnar á lóð nr. 28. Lóð sem fyrir breytingu er lóð nr. 20-26 breytist í lóð nr. 20-24. Vestari hluti þeirrar lóðar verður sérstök lóð sem er ætluð undir bílastæði, en einnig verði heimilt að byggja bílakjallara á lóðinni.

Tillagan var auglýst 11. desember 2023 og var frestur til að gera athugasemdir við tillöguna til 24. janúar 2024. Athugasemdir voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 8. febrúar 2024. Á fundi skipulagsnefndar 11. apríl 2024 gerði skipulagsstjóri grein fyrir fundi með þeim sem gerðu athugasemdir, skipulagshöfundi og arkitektum, ásamt skuggavarpsteikningum.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

4. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts 3.áfanga sem nær til lóðanna Vinastræti 22, 24, 26 og 28 að lokinni auglýsingu. Samkvæmt tillögunni er fyrirhugað að reisa félagsheimili Oddfellowreglunnar á lóð nr.28. Lóð sem fyrir breytingu er atvinnuhúsnæðislóð nr. 20-26 breytist í lóð nr. 20-24. Vestari hluti þeirrar lóðar verður sérstök lóð sem er ætluð undir bílastæði en einnig verði heimilt að reisa bílakjallara á þeirri lóð.
Athugasemdir sem bárust lagðar fram og skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi með þeim sem gerðu athugasemdir, skipulagshöfundi og arkitektum sem falið hefur verið að hanna félagsheimili Oddfellowreglunnar að undangenginni arkitektasamkeppni.
Lögð fram greinargerð arkitekta ásamt myndum sem sýna skuggavarp og sneiðingum.
Skoðað hefur verið að hnika byggingunni til á lóðinni en niðurstaða þeirrar vinnu er sú að það sé ekki unnt nema með því að gera miklar breytingar á tillögunni. Sýnt er fram á með skuggavarpsmyndum að áhrif breytingarinnar á aðliggjandi hús að norðanverðu er lítil.
Skipulagsnefnd fellst á rök arkitekta hvað þessi atriði varðar og tekur undir að áhrif breytingarinnar séu það lítil að ekki sé ástæða til að ráðast breyta tillögunni.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.1123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

3. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Urriðaholts norðurhluta 3 sem nær til lóðarinnar Vinastræti 22-28. Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi með þeim sem gerðu athugasemdir.
Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá umhverfissviði, arkitektum hússins og deiliskipulagshöfundi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts 3.áfanga að lokinni auglýsingu ásamt athugasemdum sem borist hafa.
Tillaga ásamt athugasemdum vísað til skoðunar hjá umhverfissviði og deiliskipulagshöfundi.

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

16. (931). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Vinastræti 22-28. Í tillögunni felst að lóðunum við Vinastræti 20-26 og Vinastræti 28 er skipt upp í þrjár lóðir. Vinastræti 20 ? 24, lóð fyrir atvinnustarfsemi, Vinastræti 26, bílastæðalóð og Vinastræti 28, lóð fyrir menningarstarfsemi.
Lóð við Vinastræti 28 minnkar. Heimilað heildarbyggingarmagn er óbreytt en byggingarmagn ofanjarðar eykst lítillega og byggingarreitur og skilmálar breytast til samræmis við verðlaunatillögu í samkeppni um nýtt regluheimili Oddfellow.
Lóð við Vinastræti 20-26 minnkar og fær nýtt lóðanúmer Vinastræti 20-24. Hluti byggingarreita á lóð eru felldir niður og byggingarreitur við lóðarmörk til suðausturs breytist lítillega.
Afmörkuð er ný bílastæðalóð við Vinastræti 26. Bílastæði á bílastæðalóð eru samnýtt af lóðunum við Vinastræti 20-24 og Vinastræti 28.
Bílastæðakrafa á lóðum breytist og verður 1 stæði fyrir hverja 50 m² í atvinnuhúsnæði innan lóðar. Með samnýtingu bílastæða á bílastæðalóð næst áfram krafa um 1 stæði fyrir hverja 35 m² af atvinnuhúsnæði. Mismunandi starfsemi er á lóðunum, þar sem lóðin við Vinastræti 22-26 nýtir bílastæðin aðallega á daginn en bílastæðaþörf lóðarinnar við Vinastræti 28 er mest eftir að vinnutíma lýkur, sem gerir samnýtingu ákjósanlegan kost.“ (Mál nr. 2310097)

Bæjarráð Garðabæjar

07

43.(2096). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Vinastræti 22-28. Í tillögunni felst að lóðum Vinastrætis 20-26 og Vinastrætis 28 er skipt upp í þrjár lóðir. Vinastræti 20 - 24 lóð fyrir atvinnustarfsemi, Vinastræti 26 bílastæðalóð og Vinastræti 28 lóð fyrir menningarstarfsemi.
Lóð Vinastrætis 28 minnkar. Heimilað heildarbyggingarmagn er óbreytt en byggingarmagn ofanjarðar eykst lítillega og byggingarreitur og skilmálar breytast til samræmis við verðlaunatillögu í samkeppni um nýtt regluheimili Oddfellow.
Lóð Vinastrætis 20-26 minnkar og fær nýtt lóðanúmer Vinastræti 20-24. Hluti byggingarreita á lóð eru felldir niður og byggingarreitur við lóðamörk til suðausturs breytist lítillega.
Afmörkuð er ný bílastæðalóð Vinastræti 26. Bílastæði á bílastæðalóð eru samnýtt af lóðunum Vinastræti 20-24 og Vinastræti 28.
Bílastæðakrafa á lóðum breytist og verður 1 stæði fyrir hverja 50m² í atvinnuhúsnæði innan lóðar. Með samnýtingu bílastæða á bílastæðalóð næst áfram krafa um 1 stæði fyrir hverja 35 m² af atvinnuhúsnæði. Mismunandi starfsemi er á lóðunum, þar sem Vinastræti 22-26 nýtir bílastæðin aðallega á daginn en bílastæðaþörf Vinastrætis 28 er mest eftir að vinnutíma lýkur, sem gerir samnýtingu ákjósanlegan kost.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

13. fundur

Stefán Veturliðason og Steindór Gunnlaugsson greindu frá áformum Oddfellowreglunnar um byggingu Regluheimilis við Vinastræti á háholti Urriðaholts.
Kristján Örn Kjartansson arkitekt hjá Krads arkitektum og Guðni Valberg arkitekt hjá Tripoli arkitektum gerðu grein fyrir vinningstillögu sinni í samkeppni um regluheimili við Vinastræti.
Björn Guðbrandsson arkitekt hjá Arkís gerði grein fyrir tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 3 sem nær til lóðanna Vinastræti 20-26 og 28.
Í breytingartillögunni felst að lóðum Vinastrætis 20-26 og Vinastrætis 28 er skipt upp í þrjár lóðir; Vinastræti 20-24 (lóð fyrir atvinnustarfsemi), Vinastræti 26 (bílastæðalóð) og Vinastræti 28 (lóð fyrir menningarstarfsemi).
Lóð Vinastrætis 28 minnkar. Heildar heimilað byggingamagn er óbreytt en byggingarmagn ofanjarðar eykst lítillega og byggingarreitur og skilmálar breytast til samræmis við verðlaunatillögu í samkeppni um nýtt heimili Oddfellowreglunnar.
Lóð Vinastrætis 20-26 minnkar og fær nýtt lóðanúmer Vinastræti 20-24. Hluti byggingarreita á lóð eru felldir niður og byggingarreitur við lóðamörk til suðausturs breytist lítillega.
Afmörkuð er ný bílastæðalóð Vinastræti 26. Bílastæði á bílastæðalóð eru samnýtt af lóðum Vinastrætis 20-24 og Vinastræti 28. Bílastæðakrafa á lóðum breytist og verður 1 stæði fyrir hverja 50m² í atvinnuhúsnæði innan lóðar. Með samnýtingu bílastæða á bílastæðalóð næst áfram krafa um 1 stæði fyrir hverja 35 m² af atvinnuhúsnæði. Mismunandi starfsemi er á lóðunum, þar sem Vinastræti 22-26 nýtir bílastæðin aðallega á daginn en bílastæðaþörf Vinastrætis 30 er mest eftir að vinnutíma lýkur, sem gerir samnýtingu ákjósanlegan kost.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

12. fundur

Lögð fram umsókn Oddfellowreglunnar að breytingu að deiliskipulagi Urriðaholts 3.áfanga sem næri til lóðanna Vinastræti 20-26 og 28.
Ástæða umsóknar er fyrirhuguð uppbygging regluheimils Oddfellowa í samræmi við niðurstöðu úr hönnunarsamkeppni sem Oddfellowreglan stóð fyrir fyrr á árinu.
Skipulagsnefnd óskar eftir ítarlegri kynningu á tillögunni og áhrifum hennar á aðliggjandi lóðir sem og vinningstillögu hönnunarsamkeppninnar.