9. fundur
9. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
13.07.2023
Kl. 09:30 - 09:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna María Guðmundsdóttir
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2304055
01
Fífumýri 15 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnta tillögu.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Málsnúmer 2307012
02
Holtsbúð 33 gluggabreyting - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um leyfi fyrir útkragandi glugga út fyrir byggingarreit í átt að opnu svæði Garðabæjar. Skipulagstjóri metur tillöguna óverulega í samræmi við 2.mgr.43.gr greinar skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml. 3.mgr. 44.gr.sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Málsnúmer 2102111
03
Víðiholt íbúðabyggð. Deiliskipulag
Lögð er fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu Víðiholts sem gerir ráð fyrir að djúpgámalóðir og bílastæði í götu við lóð, sameinist lóð Víðiholt 1 og Víðiholt 3. Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Víðiholts í samræmi við 2.mgr. 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Í samræmi við 2.ml. 3.mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.