Beint í efni

Fífumýri 15 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2304055

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

2. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

1. fundur

Lagðir fram uppfærðir uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir bílskúr við Fífumýri 15.
Uppdrættir gera nú ráð fyrir glugga og hurð á vesturhlið bílskúrs. Einnig hefur byggingarefni verið breytt.
Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið og voru því fyrri uppdrættir grenndarkynntir í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Þar sem skipulagslög kveða skýrt á um að ef ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið skal grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi vísar skipulagsstjóri umsókninni til grenndarkynningar samkvæmt ofangreindri lagagrein. Grenndarkynna skal eigendum Fífumýrar 12, 13 og 14, Krókamýrar 13,16 18 og 20 sem og Ljósamýrar 1 og 3. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

15. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

12. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

05

34. (2087). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðmundi Rúnari Kristjánssyni, kt. 230279-3309, leyfi til að byggja bílskúr á lóðinni að Fífumýri 15.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

06

9. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnta tillögu.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

9. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

08

6. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi um bílageymslu á lóð. Samanlagður botnflötur íbúðarhúss og bílageymslu er 190 m2 en samkvæmt því deiliskipulagi sem íbúðarbyggð í Hofstaðamýri byggir á skal samanlagður botnflötur íbúðarhúss og bílageymslu ekki vera meiri en 150 m2. Deiliskipulagið gerði einnig ráð fyrir tvöfaldri bílageymslu en umsókn gerir ráð fyrir einfaldri bílageymslu sem verður tengd íbúðarhúsi með anddyrisbyggingu.
Þar sem að deiliskipulag Hofstaðamýrar telst ekki í gildi þar sem það var samþykkt í bæjarstjórn áður en að fyrsta aðalskipulag Garðabæjar hafði tekið gildi hlýtur umsókn um byggingarleyfi ferli í samræmi við 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar samkvæmt ofangreindri lagagrein. Grenndarkynna skal eigendum Fífumýrar 12, 13 og 14, Krókamýrar 13,16 18 og 20 sem og Ljósamýrar 1 og 3.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.