6. fundur
6. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
16.11.2018
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
- Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
01
Hlið, breyting friðlýsingarmarka
Skipulagsstjóri kynnti stöðu mála og niðurstöður fundar Garðabæjar með Umhverfisstofnun.
02
Hnoðraholt og Vetrarmýri, dsk br v. fjölnota íþróttahúss
Skipulagsstjóri kynnti tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar vegna fjölnota íþróttahús sem er í kynningu. Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.
03
Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2019
Tvær umsóknir voru sendar inn í framkvæmdasjóð ferðamannastaða, strandstígur á Álftanesi og framhald af úrbótum á stíg í Búrfellsgjá. Kynnt fyrir nefndinni.
04
Fundargerðir 2018 - 2022 - Reykjanesfólkvangur
Formaður Umhverfisnefndar situr í stjórn Reykjanesfólkvangs og gerði grein fyrir fundargerðinni.
Umhverfisnefnd telur þörf á að landvörður verði hafður í fólkvanginum allt árið.
06
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um yfirlit yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga
Lagt fram og kynnt.
07
Tillaga um að draga úr plastmengun í rekstri Garðabæjar og stofnana á vegum bæjarins.
Umhverfisnefnd hefur hafið undirbúning að innleiðingu á stefnu varðandi plastmengun.
08
Fyrirspurn frá Sveinbjörgu Vilhjálmsdóttur
Fyrirspurn:
Eru einhver áform um endurbætur á fráveitu eða síun skólps á Álftanesi á næstunni? Töluverð saurgerlamengun við Skógtjörn/Miðskóga, Skógtjörn/Lambhaga, Gesthúsavör og Hrakhólma hefur komið fram við mælingar sl. 2 ár.
Hefur verið bætt úr frárennslismálum við Lambhaga 17
Svar:
Til er áætlun um endurbætur á fráveitu á Álftanesi sem unnin var af VSÓ og fylgdi sú áætlun með í sameiningunni. VSÓ hefur verið ráðgjafi okkar í fráveituverkefnum á svæðinu. Stefnt er að setja fullkomnari hreinsistöð við Hrakhólma en það er dýr framkvæmd og er ekki komin á framkvæmdaáætlun. Unnið hefur verið að úrbótum á fráveitu á Álftanesi eftir áætluninni eins og fjárhagsáætlun leyfir, þar má telja:
1. Hreinsa lagnir í tveimur hverfum, bæði leka og rætur úr lögnum
2. Endurnýjun á stýrikerfi og vöktun á kerfunum
Við Lambhaga 17 á að setja fullkomnari rotþró í samráði við húseigendur til að byrja með, en til stendur að finna varanlegri lausn í framhaldinu.
Þess má geta að uppbygging á Álftanesi kallar á heildar endurskoðun á fráveitukerfi svæðisins.