Fyrirspurn frá Sveinbjörgu Vilhjálmsdóttur
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
6. fundur
Fyrirspurn:
Eru einhver áform um endurbætur á fráveitu eða síun skólps á Álftanesi á næstunni? Töluverð saurgerlamengun við Skógtjörn/Miðskóga, Skógtjörn/Lambhaga, Gesthúsavör og Hrakhólma hefur komið fram við mælingar sl. 2 ár.
Hefur verið bætt úr frárennslismálum við Lambhaga 17
Svar:
Til er áætlun um endurbætur á fráveitu á Álftanesi sem unnin var af VSÓ og fylgdi sú áætlun með í sameiningunni. VSÓ hefur verið ráðgjafi okkar í fráveituverkefnum á svæðinu. Stefnt er að setja fullkomnari hreinsistöð við Hrakhólma en það er dýr framkvæmd og er ekki komin á framkvæmdaáætlun. Unnið hefur verið að úrbótum á fráveitu á Álftanesi eftir áætluninni eins og fjárhagsáætlun leyfir, þar má telja:
1. Hreinsa lagnir í tveimur hverfum, bæði leka og rætur úr lögnum
2. Endurnýjun á stýrikerfi og vöktun á kerfunum
Við Lambhaga 17 á að setja fullkomnari rotþró í samráði við húseigendur til að byrja með, en til stendur að finna varanlegri lausn í framhaldinu.
Þess má geta að uppbygging á Álftanesi kallar á heildar endurskoðun á fráveitukerfi svæðisins.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
5. fundur
1. Eru einhver áform um endurbætur á fráveitu eða síun skólps á Álftanesi á næstunni? Töluverð saurgerlamengun við Skógtjörn / Miðskóga, Skógtjörn / Lambhaga, Gesthúsavör og Hrakhólma hefur komið frá við mælingar sl. 2 ár.
Hefur verið bætt úr frárennslismálum við Lambhaga 17?
2. Á síðasta kjörtímabili var sótt um fjárveitingu eða styrk til að hækka upp suðurstrandarveg við Hrakhólma. Hvernig standa málin í dag?