Framlög til stjórnmálasamtaka 2018
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
25. (1840). fundur
Samkvæmt fjárhagsáætlun 2018 nemur framlag til stjórnmálaflokka kr. 3.500.000.
Á fyrri hluta ársins kom til greiðslu framlags að fjárhæð kr. 1.604.167.
Bæjarráð samþykkir að á síðari hluta ársins komi til greiðslu framlag að fjárhæð kr. 1.895.833 sem skiptist með eftirfarandi hætti.
Sjálfstæðisfélag Garðabæjar kr. 1.212.796
Bæjarmálaafl Garðabæjar kr. 550.145
Miðflokkurinn kr. 132.892
Bæjarráð Garðabæjar
03
11. (1826). fundur
Í 2. mgr. 5. gr. laga um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra kemur fram að á því ári sem sveitarstjórnarkosningar eru skal úthlutun framlaga fara fram á fyrri hluta árs og síðan á síðari hluta árs í samræmi við kjörfylgi í nýafstöðnum kosningum Með vísan til þess er ákvörðun um frá síðasta fundi um skiptingu framlaga felld úr gildi.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi skiptingu framlaga fyrir fyrri hluta árs 2018.
Sjálfstæðisflokkur kr. 943.514
Framsóknarflokkur kr. 106.013
Björt framtíð kr. 237.324
Samfylkingin kr. 159.019
Fólkið í bænum kr. 158.296
Samtals: kr. 1.604.167
Bæjarráð Garðabæjar
04
10. (1825). fundur
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi skiptingu á greiðslu til stjórnmálasamtaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2018.
Framsóknarflokkur kr. 231.301
Sjálfstæðisflokkur kr. 2.058.576
Björt framtíð kr. 517.798
Samfylking kr. 346.951
Fólkið í bænum kr. 345.374
Samtals: kr. 3.500.000