11. (1826). fundur
11. (1826). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
20.03.2018
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
03
Bréf Nordjobb um sumarstörf 2018, dags. 02.03.18.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
04
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um Þjóðskrá Íslands, 339. mál., dags. 12.03.18.
Lagt fram.
05
Bréf umhverfisnefndar varðandi drög að samstarfsamningum um uppsetningu og rekstur á veðurstöð í Urriðaholti, dags. 16.03.18.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samstarfsamning við Urriðaholt ehf., Háskóla Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands og Veðurstofu Íslands um uppsetningu og rekstur á veðurstöð í Urriðaholti.
Fylgiskjöl
06
Bréf Skipulagsstofnunar varðandi staðfestingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030, dags. 14.03.18
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar þar sem fram kemur að aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 er staðfest samkvæmt ákvæðum skipulagslaga.
Fylgiskjöl
07
Tilkynning frá samgöngu - og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi kynningu á tillögu til þingsályktunar um byggðamál, dags 12.03.18.
Lögð fram.
08
Tilboð í ibúð við Stórás 7
Bæjarráð samþykkir kauptilboð að fjárhæð kr. 35.000.000 í íbúð að Stórás 7 en húsnæðið verður félagsleg leiguíbúð.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun 2018 vegna fjárfestingar í félagslegu íbúðarhúsnæði.
09
Framlög til stjórnmálasamtaka 2018.
Í 2. mgr. 5. gr. laga um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra kemur fram að á því ári sem sveitarstjórnarkosningar eru skal úthlutun framlaga fara fram á fyrri hluta árs og síðan á síðari hluta árs í samræmi við kjörfylgi í nýafstöðnum kosningum Með vísan til þess er ákvörðun um frá síðasta fundi um skiptingu framlaga felld úr gildi.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi skiptingu framlaga fyrir fyrri hluta árs 2018.
Sjálfstæðisflokkur kr. 943.514
Framsóknarflokkur kr. 106.013
Björt framtíð kr. 237.324
Samfylkingin kr. 159.019
Fólkið í bænum kr. 158.296
Samtals: kr. 1.604.167
11
Bréf Fólksins í bænum varðandi upplýsingar um styrki, dags. 15.03.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra.