Garðabær - þjónustukönnun 2017
Ferill máls
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
01
21. fundur
Lagðar fram nðurstöður í þjónustukönnun meðal íbúa sem fram fór í nóvember sl.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
42. fundur
Íbúakönnun lögð fram. Nefndin ánægð með niðurstöðurnar.
Leikskólanefnd Garðabæjar
03
31. fundur
Niðurstöður þjónustukönnunarinnar kynntar. Nefndin fagnar góðum niðurstöðum og þakkar starfsfólki vel unnin störf.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
05
28. fundur
Lögð var fram til kynningar þjónustukönnun Gallup þar sem viðhorf íbúa til þjónustu í 19 stærstu sveitarfélögum landsins er mælt. Farið var yfir helstu þætti könnunarinnar.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
06
39. fundur
Skólanefnd lýsir yfir ánægju með þessar niðurstöður og felur formanni skólanefndar að koma á framfæri þakklæti nefndarinnar til starfsfólks skólanna.
Fjölskylduráð Garðabæjar
07
1. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1710188 - þjónustukönnun 2017.
Fjölskylduráð fagnar góðri niðurstöðu úr þjónustukönnuninni. Ráðið leggur um leið áherslu á að rýnt sé í einstaka þætti könnunarinnar s.s. þjónustu við fatlað fólk og eldri borgara og skoðað með hvaða hætti hægt sé að bæta þjónustuna frekar. Formanni er falið að fylgja málinu eftir.
Bæjarráð Garðabæjar
08
2. (1817). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal íbúa á árinu 2017 sem í öllum meginatriðum er jákvæð í helstu málaflokkum. Bæjarráð samþykkir að vísa þjónustukönnuninni til umfjöllunar nefnda.