Beint í efni

1. fundur

25.01.2018
Fjölskylduráð Garðabæjar

1. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

25.01.2018

Kl. 16:30 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sturla D Þorsteinsson - formaður
  • Sigþrúður Ármann - aðalmaður
  • Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
  • Sigríður Finnbjörnsdóttir - varamaður
  • Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður

Starfsmenn

  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi

Ritari

  • Bergljót Sigurbjörnsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1711247

01

Vinnuumhverfi

Tekið er fyrir mál nr. 1711247 Vinnuumhverfi.

Fjölskylduráð Garðabæjar fjallar um tillögu bæjarstjórnar Garðabæjar dags. 7. des. 2017 í kjölfar #metoo byltingar. Fjölskylduráð fagnar þeirri ákvörðun bæjarstjórnar að fylgja umræðunni eftir með fræðslu fyrir starfsmenn og ungmenni í Garðabæ ásamt stuðningi við frjáls félög í sveitarfélaginu m.a.með fræðslu- og námskeiðshaldi.

Málsnúmer 1710188

02

Íbúakönnun - þjónustukönnun 2017

Tekið er fyrir mál nr. 1710188 - þjónustukönnun 2017.

Fjölskylduráð fagnar góðri niðurstöðu úr þjónustukönnuninni. Ráðið leggur um leið áherslu á að rýnt sé í einstaka þætti könnunarinnar s.s. þjónustu við fatlað fólk og eldri borgara og skoðað með hvaða hætti hægt sé að bæta þjónustuna frekar. Formanni er falið að fylgja málinu eftir.

Málsnúmer 1801230

03

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Tekið er fyrir mál nr. 1801230 - umsókn um fjárhagsaðstoð.

Fjölskylduráð fjallar um umsóknina og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.