Vinnuumhverfi
Ferill máls
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
01
39. fundur
Skólanefnd telur nauðsynlegt að þessu mikilvæga máli sé fylgt vel eftir. Kynbundið áreiti og annað ofbeldi á aldrei að líðast, verkferlar þurfa að vera skýrir, aðgengilegir og virkir.
Fjölskylduráð Garðabæjar
02
1. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1711247 Vinnuumhverfi.
Fjölskylduráð Garðabæjar fjallar um tillögu bæjarstjórnar Garðabæjar dags. 7. des. 2017 í kjölfar #metoo byltingar. Fjölskylduráð fagnar þeirri ákvörðun bæjarstjórnar að fylgja umræðunni eftir með fræðslu fyrir starfsmenn og ungmenni í Garðabæ ásamt stuðningi við frjáls félög í sveitarfélaginu m.a.með fræðslu- og námskeiðshaldi.
Bæjarráð Garðabæjar
03
46. (1812). fundur
Lögð fram bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá fundi 24. nóvember sl. þar sveitarfélög er hvött til að móta stefnu og viðbragðsáætlun til að bregðast við og koma i veg fyrir kynferðisofbeldi og áreiti á vinnustöðum sveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkir að vísa bókun stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga til umfjöllunar í skólanefnd, fjölskylduráði, ungmennaráði og íþrótta- og tómstundaráði.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að taka málefnið til umræðu á fundum með forstöðumönnum þar sem farið verður yfir stefnu Garðabæjar og viðbragðsáætlun til að bregðast við og koma i veg fyrir kynferðisofbeldi og áreiti á vinnustöðum Garðabæjar og í grunnskólum bæjarins.