46. (1812). fundur
46. (1812). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
28.11.2017
Kl. 08:00 - 08:40
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1605502
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 - Viðaukar 10 og 11
Á fundi bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og sat hann fundinn undir dagskrárliðum 1, 2 og 3. Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðaukum nr. 10 og 11 við fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2017. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 10 og 11 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 10 - sumarátak vegna vinnu ungs fólks og langtímaveikindi.
Sumarátak kr. 26.000.000
Langtímaveikindi kr. 20.000.000
Hækkun staðgreiðslu útsvars kr. 46.000.000
Viðauki 11 - kaup á félagslegu húsnæði.
Kaup á fasteign (eignfærsla) kr. 32.500.000
Greiðsla - lækkun á handbæru fé kr. 3.228.836
Langtímalán kr. 29.271.164
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1711244
02
Ársreikningur Garðabær 2017 - Kynning í upphafi endurskoðunar.
Lögð fram kynning KPMG þar sem komið er á framfæri upplýsingum um nálgun og helstu áherslur við endurskoðun á ársreikningi fyrir árið 2017. Samkvæmt tímaáætlun er gert ráð fyrir að ársreikningur fyrir árið 2017 komi til fyrri umræðu í bæjarstjórn í mars 2018.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1707051
03
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 (2018-2021) - Ábendingar íbúa.
Lagt fram yfirlit yfir ábendingar frá íbúum sem borist hafa í tengslum við vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018. Alls er um að ræða 75 ábendingar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra í framhaldi af samþykkt fjárhagsáætlunar að svara öllum ábendingum og greina nánar frá viðbrögðum við einstaka tilvikum.
Málsnúmer 1709161
04
Urriðaholtsstræti 30 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita PK Byggingum ehf., kt. 530307-2200, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 13 íbúðum að Urriðaholtsstræti 30.
Málsnúmer 1703262
05
Íþróttavellir í Ásgarði og Bæjargarði - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir girðingum við íþróttavelli við Ásgarð og í Bæjargarði.
María Grétarsdóttir, situr hjá.
Málsnúmer 1711160
06
Tilkynning frá velferðarráðuneyti varðandi nýja ráðuneytisstofnun um stjórnsýslu og eftirlit með félagsþjónustu, dags. 17.11.17.
Málsnúmer 1711161
07
Bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru BSS á framkvæmdaleyfi vegna ljósabúnaðar fyrir gervigrasvöll, dags. 17.11.17.
Málsnúmer 1711177
08
Bréf styrktarfélagsins Aflsins um styrk, dags. 20.11.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2018.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1711201
09
Bréf félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla um styrk fyrir árið 2018, dags. 20.11.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2018.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1711226
10
Bréf Snorrasjóðs um styrk vegna Snorraverkefnis 2018, dags. 20.11.17.
Málsnúmer 1711247
11
Vinnuumhverfi - viðbrögð gagnvart kynferðisofbeldi og áreiti á vinnustöðum.
Lögð fram bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá fundi 24. nóvember sl. þar sveitarfélög er hvött til að móta stefnu og viðbragðsáætlun til að bregðast við og koma i veg fyrir kynferðisofbeldi og áreiti á vinnustöðum sveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkir að vísa bókun stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga til umfjöllunar í skólanefnd, fjölskylduráði, ungmennaráði og íþrótta- og tómstundaráði.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að taka málefnið til umræðu á fundum með forstöðumönnum þar sem farið verður yfir stefnu Garðabæjar og viðbragðsáætlun til að bregðast við og koma i veg fyrir kynferðisofbeldi og áreiti á vinnustöðum Garðabæjar og í grunnskólum bæjarins.