21. fundur
21. fundur
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg
01.03.2018
Kl. 17:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kristinn Guðlaugsson - formaður
- Þorgerður Anna Arnardóttir - aðalmaður
- Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
- Kristín Harðardóttir - aðalmaður
- Þóroddur Bjarnason - aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri
Ritari
- Laufey Ólafsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1710188
01
Garðabær - þjónustukönnun 2017
Lagðar fram nðurstöður í þjónustukönnun meðal íbúa sem fram fór í nóvember sl.
Málsnúmer 1709172
02
Skólastarf tónlistarskóla 2017 - 2018
Skólastjóri sagði frá viðburðum skólans á Degi tónlistarskólanna sem haldinn var í Kirkjulundi laugardaginn 10. febrúar. Haldnir voru 14 tónleikar þann daginn í skólanum og var þema tónleikanna samspil. Dagurinn var haldinn i kjölfar samspilsviku sem heppnaðist afar vel. Foreldraviðtöl fóru fram 22.-26. janúar sl. þá voru foreldrar barna upp að 18 ára aldri boðaðir til að mæta í tíma hjá börnum sínum til að ræða námið og fylgjast með kennslu. Framundan er fjöldi tónleika vikuna 12.-15. mars og í siðustu viku fyrir páska fara nemendur í árspróf í skólanum, nema þeir sem taka áfangapróf á vorönn.
Málsnúmer 1711059
03
Foreldrakönnun
Skólastjóri upplýsti að í mars verður lögð fyrir könnun til foreldra sambærilegri þeirri sem lögð var fyrir vorið 2015. Þá var send út stutt könnun 28. febrúar sl. til að kanna hug foreldra barna sem eru í blásarafornámi, sem er tilraunaverkefni skólans.
Málsnúmer 1801271
04
Skólaþing Garðabæjar 2018
Katrín Friðriksdóttir sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs mætti til fundarins og kynnti fyrirhugað Skólaþing Garðabæjar sem haldið verður í sal Flataskóla miðvikudaginn 7. mars og hefst kl. 17:30.