Skólastarf tónlistarskóla 2017 - 2018
Ferill máls
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
01
23. fundur
Skólastjóri fór yfir þá tónleika sem farið hafa fram undanfarið, fram kom að síðustu tónleikar skólaársins verða á Álftanesi á morgun fimmtudag kl. 18:00 og 19:00.
22. maí fara nemendur í heimsókn á Hrafnistu og halda þar árlega tónleika. Hljóðfærakynningar fara fram í grunnskólum Garðabæjar 22. og 23. maí nk. Þá verða haldnir 29 tónfundir áður en skólastarfi lýkur.
Skólaslit tónlistarskólans verða þriðjudaginn 29. maí kl. 17:30 í Vídalínskirkju.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
02
22. fundur
Skólastjóri fór yfir helstu verkefni tónlistarskólans. Mikil þátttaka nemenda var á 6 tónleikum sem fram fóru vikuna 12.- 15. mars. Árspróf voru haldin 8.-12. apríl, allir nemendur sem ekki taka áfangapróf á árinu þreyta prófin. Einn nemandi lauk seinni hluta framhaldsprófs á píanó með tónleikum 26. apríl sl. Jamsession, samstarfsverkefni rytmadeilda nokkurra tónlistarskóla fór að þessu sinni fram í Tónlistarskóla Garðabæjar 11. apríl. Þá hafa að undanförnu farið fram masterklassar fyrir lengra komna píanónemendur og saxófónemendur. Þá hafa nemendur komið víða fram í sveitarfélaginu s.s. á Ísafold og á skólaþingi.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
03
21. fundur
Skólastjóri sagði frá viðburðum skólans á Degi tónlistarskólanna sem haldinn var í Kirkjulundi laugardaginn 10. febrúar. Haldnir voru 14 tónleikar þann daginn í skólanum og var þema tónleikanna samspil. Dagurinn var haldinn i kjölfar samspilsviku sem heppnaðist afar vel. Foreldraviðtöl fóru fram 22.-26. janúar sl. þá voru foreldrar barna upp að 18 ára aldri boðaðir til að mæta í tíma hjá börnum sínum til að ræða námið og fylgjast með kennslu. Framundan er fjöldi tónleika vikuna 12.-15. mars og í siðustu viku fyrir páska fara nemendur í árspróf í skólanum, nema þeir sem taka áfangapróf á vorönn.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
04
20. fundur
Skólastjóri sagði frá miklu og fjölbreyttu starfi í haust. Haldnir voru 7 hausttónleikar í október, blásarasveitir fóru í æfingabúðir, samspilshópur fór til Danmerkur og æfði og hélt tónleika með jafnöldrum sínum í Give. 28. október var stóri píanódagurinn, en þá koma píanónemendur skólans saman á laugardegi ásamt píanókennurum og vinna að fjölbreyttum verkefnum. Hluti kennara skólans fór í námsferð til Rómar sem var bæði fróðleg og ánægjuleg.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
05
19. fundur
Tónlistarskólinn var settur á sal skólans miðvikudaginn 23. ágúst síðastliðinn. Skólastjóri fór yfir fjölda nemenda sem verða um 490 og kennarar við skólann verða 47. 2 kennarar eru í leyfi vetur og hefur verið ráðið í þeirra stöður. Skólinn er með 7 starfsstöðvar.