Beint í efni

22. fundur

12.04.2018
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

22. fundur

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

12.04.2018

Kl. 17:00 - 17:50

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Kristinn Guðlaugsson - formaður
  • Þorgerður Anna Arnardóttir - aðalmaður
  • Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
  • Kristín Harðardóttir - aðalmaður
  • Þóroddur Bjarnason - aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri

Ritari

  • Laufey Ólafsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1709172

01

Skólastarf tónlistarskóla 2017 - 2018

Skólastjóri fór yfir helstu verkefni tónlistarskólans. Mikil þátttaka nemenda var á 6 tónleikum sem fram fóru vikuna 12.- 15. mars. Árspróf voru haldin 8.-12. apríl, allir nemendur sem ekki taka áfangapróf á árinu þreyta prófin. Einn nemandi lauk seinni hluta framhaldsprófs á píanó með tónleikum 26. apríl sl. Jamsession, samstarfsverkefni rytmadeilda nokkurra tónlistarskóla fór að þessu sinni fram í Tónlistarskóla Garðabæjar 11. apríl. Þá hafa að undanförnu farið fram masterklassar fyrir lengra komna píanónemendur og saxófónemendur. Þá hafa nemendur komið víða fram í sveitarfélaginu s.s. á Ísafold og á skólaþingi.

Málsnúmer 1804094

02

Skóladagatal tónlistarskólans 2018-2019



Skólastjóri fór yfir skóladagatal 2018-2019 og helstu dagsetningar. Fram kom að tónlistarskólinn verður settur 24. ágúst og skólaslit verða 27. maí 2019. Jóla- og páskafrí ásamt vetrarfríi eru samræmd skóladagatali grunnskólanna en vetrarfrí er vikuna 18.-22. febrúar.

Skólanefndin samþykkir skóladagatalið fyrir sitt leiti.

Málsnúmer 1804092

03

Gjaldskrá 2018-2019



Fyrir fundinum lá tillaga að gjaldskrá fyrir skólaárið 2018-2019. Gerir gjaldskráin ráð fyrir tæplega 3% hækkun gjalda sem eru í samræmi við þær gjaldskrárhækkanir sem urðu um síðastliðin áramót.

Skólanefndin samþykkir gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2018-2019.

Málsnúmer 1711059

04

Foreldrakönnun

Skólastjóri fór yfir helstu niðurstöður úr foreldra- og þjónustukönnun sem framkvæmd var í marsmánuði síðast liðnum. Helstu niður stöður eru:

* 94% eru í heildina ánægð með tónlistarskólann

* 92,2% voru mjög eða frekar ánægði með kennsluna

* 94,2% ánægja með viðmót kennaranna

* 95,5% barna líður alltaf eða oftast vel í tónlistarskólanum

* 92% eru ánægð með samskipti við skólann

* 88,8% foreldra finnst námið við tónlistarskólann uppfylla þær væntingar sem þeir höfðu áður en námið hófst

* 86,2% telja að námið uppfylli væntingar barnsins.