Beint í efni

Víkurgata 11 - DSK breyting - fyrirspurn

Málsnúmer 1802150

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. (827). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis einbýlishúss við Víkurgötu 11 og að leyft verði að hafa einfaldan bílskúr í stað þess að hafa tvöfaldan eins og skilmálar kveða á um. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

02

10. (1825). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis einbýlishúss við Víkurgötu 11 og að leyft verði að hafa einfaldan bílskúr í stað þess að hafa tvöfaldan eins og skilmálar kveða á um. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

5. fundur

Lögð fram fyrirspun lóðarhafa um það hvort heimilað verði að sækja um leyfi fyrir einfaldrara bílageymslu í stað tvöfaldar. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf sem er jákvæð gagnvart fyrirspurninni. Með vísan í umsögn skipulagshöfundar og 3.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 hvað umrætt atriði varðar. Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.