Útboð - Vetrarþjónusta göngu- og hjólaleiða í Garðabæ 2018-2021.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
31. (1846). fundur
Lögð fram eftirfarandi tilboð eftir yfirferð.
Vegamál - Vegmerking ehf. kr. 34.981.668
Íslenska gámafélagið ehf. kr. 37.362.000
Garðlist ehf. kr. 39.300.000
Gröfuverk ehf. kr. 41.533.332
Hreinsitækni ehf. kr. 42.474.000
Kostnaðaráætlun kr. 39.900.000
Tilboð lægstbjóðanda uppfyllir ekki kröfur sem gerðar eru til hæfni og reynslu í grein 0.1.3. í útboðsskilmálum en bjóðandi hefur ekki unnið sambærilegt verk að umfangi á síðast liðnum 5 árum og yfirstjórnandi verksins hefur ekki 5 ára reynslu af sambærilegum verkefnum. Þá hefur bjóðandi ekki skilað lýsingu á gæðastjórnunarkerfi eins og áskilið er í grein 0.4.2 í útboðsgögnum.
Tilboði lægstbjóðanda er af ofangreindum ástæðum hafnað.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði næst lægstbjóðanda Íslenska gámafélagsins með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings en um er að ræða innkaup yfir viðmiðunarfjárhæðum Evrópska efnahagssvæðisins.
Vetrarþjónusta göngu- og hjólaleiða var áður boðin út í byrjun júní en á fundi bæjarráðs sem var haldinn 3.júlí sl. var samþykkt vísan til ágalla í auglýsingu, og að öðru leyti við framkvæmd útboðsins, að hafna öllum tilboðum og auglýsa útboðið að nýju.
Bæjarráð Garðabæjar
03
23. (1838). fundur
Við opnun tilboða sem fór fram þriðjudaginn 26. júní sl. voru lögð fram eftirfarandi tilboð.
Hreinsitækni ehf. kr. 42.474.000
Íslenska Gámafélagið kr. 67.500.000
Kostnaðaráætlun kr. 39.900.000
Fyrir liggur að röng dagsetning var tilgreind í auglýsingu útboðsins hvað varðar tímasetningu á opnun tilboða í en þar kom fram að opnum færi fram 16. júní en ekki 26. júní eins og tilgreint var í útboðsgögnum.
Bæjarráð samþykkir með vísan til ágalla í auglýsingu, og að öðru leyti við framkvæmd útboðsins, að hafna öllum tilboðum og auglýsa útboðið að nýju.
Bjóðendum skal tilkynnt um ágalla við framkvæmd uppboðsins og þeir upplýstir um að útboðið verði auglýst að nýju. Jafnframt skulu þeir hvattir til að senda inn tilboð í kjölfar nýrrar auglýsingar.