Vinastræti 10-12 (12-14) -Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
6. fundur
Lögð fram umsókn húsbyggjanda um að fellt verði niður ákvæði um gegnumgang á fyrstu hæð sem kemur fram í kafla 4.7.1. í greinargerð deiliskipulag Urriðaholts Norðurhluta 3.áfanga. Í ákvæðinu segir að stigahús fjölbýlishúsa skulu "að jafnaði" verða gegnumgegn á jarðhæð/inngangshæð "þar sem það á við". Á lóðinni háttar svo til að baklóðin er að mestu leyti ráðstafað fyrir sérnotareiti.
Skipulagstjóri tekur undir sjónarmið húsbyggjanda og gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi án gegnumganga.
Húsbyggjandi leggur auk þess til að eitt húsnúmer falli niður, þ.e. nr. 18 í samræmi við byggingarleyfisumsókn. Skipulagsstjóri beinir því til tækni-og umhverfissviðs að gera breytingar á mæliblöðum í samráði við umráðendur annarra lóða við Vinastræti, þ.e. nr. 20, 22-28 og 30 en til þess að ekki falli út númer þarf að breyta hærri númerum því til samræmis.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarráð Garðabæjar
03
23. (1838). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG íbúðum, kt. 600115-0220 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 18 íbúðum á lóðinni að Vinastræti 12-14.