Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar varðandi lóðina við Smiðsbúð 6.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
31. (1846). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar vegna lóðarinnar við Smiðsbúð 6 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
10. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Iðnbúðar og Smiðsbúðar sem nær til lóðarinnar Smiðsbúð 6 sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð og stoðveggjar á lóðarmörkum. Engar athugasemdir hafa borist. Tillagan skoðast því samþykkt sbr. 2. mgr. 43. gr. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
04
23. (1838). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar í tilefni umsóknar lóðarhafa að Smiðsbúð 6 um stækkun byggingarreits 2, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
9. fundur
Lögð fram umsókn lóðarhafa um breytingu deiliskipulags Iðnbúðar/Smiðsbúðar sem gerir ráð fyrir stækkun byggingareits á baklóð fyrir lágreist lagerrými. Fram kemur í umsókn að brýn þörf sé fyrir aukið lagerrými vegna aukinna umsvifa járnsmiðjunnar sem rekin er í byggingunni.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar/Smiðsbúðar og vísar henni til grenndarkynningar.
Grenndarkynna skal eigendum, íbúum og rekstraraðilum að Smiðsbúð 3,4, 5,7 og 8 og Gilsbúð 3, 5 og 7.