Goðatún 19 - viðbygging - stækkun
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
01
8. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegir breytingu deiliskipulags Silfurtúns að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarráð Garðabæjar
03
23. (1838). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Silfurtúns í tilefni umsóknar lóðarhafa að Goðatúni 19 um stækkun byggingareits, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn lóðarhafa um breytingu á hámarkshæð samkvæmt skilmálum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
9. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa þar sem óskað er eftir því að byggingarreitur stækki á baklóð sem nemur 12 fermetrum og að ný viðbygging verði allt að 65 cm hærri en hámarkshæð sem er 4,2 m. Viðbygging verði tveggja hæða en neðri hæð niðurgrafin.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stækkun byggingarreits en hafnar því að viðbygging verði hærri en hámarkshæð samkvæmt deiliskipulagi. Skipulagsnefnd metur tillögu að breytingu byggingarreits með óbreyttri hámarkshæð sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns og vísar henni til grenndarkynningar.