Beint í efni

8. fundur

26.09.2018
afgreiðslufundir skipulagsstjóra

8. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

í endanum 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

26.09.2018

Kl. 14:00 - 14:40

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson
  • Anna María Guðmundsdóttir
  • Eysteinn Haraldsson
  • Guðjón Erling Friðriksson
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1809018

01

Smáraflöt 4, viðbygging - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um hvort horn byggingar geti náð inn á bílastæði framan við bílageymslu.

Deiliskipulagið gerir ráð fyrir því að við einbýlishús á þessu svæði sé tryggt að rými sé til fyrir bílastæði sem er 7 metra djúpt og 5 metra breytt. Þar vegur dýptin þyngra út frá öryggissjónarmiðum. Æskilegra er að breidd bílastæðisins sé 5 m en til greina kemur að hægt sé að veita frávik frá ákvæðum deiliskipulags hvað þetta varðar við útgáfu byggingarleyfis með tilliti til aðstæðna. Hvað lengd bílageymslu varðar ef hún er byggð framan við núverandi bílageymslu og sú eldri nýtt sem íbúðarrými þá er um deiliskipualgsbreytingu að ræða þar sem lengd brunagafls er lengri en 7.5 metrar.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 1805160

02

Víkurgata 20 -Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram byggingarleyfisuppdrættir af íbúðarhúsi að Víkurgata 20. Sýnd er 14,6 m2 niðurgrafin útigeymsla innan við stoðvegg á suðurhluta lóðar og hurðargat fyrir geymsluna.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að frávik frá skipulagsskilmálum verði veitt við veitingu byggingarleyfis hvað heildarbyggingarmagn að viðbættri útigeymslu. Samþykki nágranna skal þó liggja fyrir enda er útigeymsla nær lóðarmörkum að Víkurgötu 22 en 3 metrar.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 1809031

03

Túnfit 6-Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem sýna stoðveggi á lóðarmörkum að Lækjarfit 21 og göngustíg á milli Túnfitjar 6 og Lækjarfitjar 16.

Skipulagsstjóri hafnar útfærslu á stoðveggjum við göngustíg og skal mótun lóðar þar vera óbreytt og sambærilegt útfærslu hinumegin stígsins.

Þar sem að hæð veggjar (stoðveggjar og fallvarnar) á milli Túnfitar 6 og Lækjarfitjar 16 samkvæmt tillögu er hærri en 1,8 lítur skipulagsstjóri á tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Lækjafitjar 16 og 21 og Túnfitjar 3, 4 og 5. Heimilt er að stytta tíma grenndarkynningar ef að þeir aðilar sem grenndarkynning nær til hafa með áritun sinni lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við tillöguna.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 1805268

04

Goðatún 19 - viðbygging - stækkun

Lögð fram tillaga að óverulegir breytingu deiliskipulags Silfurtúns að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 1809297

05

Skipulag - Búðarflöt 3

Lögð fram fyrirspurn um staðsetningu bifreiðargeymslu við Höfðaveg. Skipulagsstjóri vísar tillögunni til skipulagsráðgjafa við gerð deiliskipulags fyrir Suðurnes á Álftanesi sem nú er í vinnslu en skipulagssvæði tillögunnar nær til Búðaflatar.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 1809188

06

Vesturtún 28 - breyting á bílskúr

Lögð fram fyrirspurn um breytingu á raðhúsinu Vesturtún 28 sem gerir ráð fyrir því að bifreiðargeymslu verði breytt í íbúðarrými.

Í gildi er deiliskipulag Vesturtúns en þar segir í grein 2.6. í skipulasskilmálum að heimilt sé að gera bílageymslur fyrir allt að 2 bíla á lóðum einbýlis-, par- og raðhúsa. Því fylgir þar að leiðandi engin kvöð um gerð bifreiðargeymslu og breytingin myndi ekki ganga gegn ákvæðum deiliskipulags. Hinsvegar þarf samþykki annarra eigenda í raðhúslengunni að liggja fyrir þar sem um útlitsbreytingu er að ræða sbr. ákvæði fjöleignahúslaga.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.