Beint í efni

Túnfit 6-Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1809031

Ferill máls

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

01

8. fundur

Lagðir fram uppdrættir sem sýna stoðveggi á lóðarmörkum að Lækjarfit 21 og göngustíg á milli Túnfitjar 6 og Lækjarfitjar 16.
Skipulagsstjóri hafnar útfærslu á stoðveggjum við göngustíg og skal mótun lóðar þar vera óbreytt og sambærilegt útfærslu hinumegin stígsins.
Þar sem að hæð veggjar (stoðveggjar og fallvarnar) á milli Túnfitar 6 og Lækjarfitjar 16 samkvæmt tillögu er hærri en 1,8 lítur skipulagsstjóri á tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Lækjafitjar 16 og 21 og Túnfitjar 3, 4 og 5. Heimilt er að stytta tíma grenndarkynningar ef að þeir aðilar sem grenndarkynning nær til hafa með áritun sinni lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við tillöguna.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.