Smáraflöt 4, viðbygging - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
01
8. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um hvort horn byggingar geti náð inn á bílastæði framan við bílageymslu.
Deiliskipulagið gerir ráð fyrir því að við einbýlishús á þessu svæði sé tryggt að rými sé til fyrir bílastæði sem er 7 metra djúpt og 5 metra breytt. Þar vegur dýptin þyngra út frá öryggissjónarmiðum. Æskilegra er að breidd bílastæðisins sé 5 m en til greina kemur að hægt sé að veita frávik frá ákvæðum deiliskipulags hvað þetta varðar við útgáfu byggingarleyfis með tilliti til aðstæðna. Hvað lengd bílageymslu varðar ef hún er byggð framan við núverandi bílageymslu og sú eldri nýtt sem íbúðarrými þá er um deiliskipualgsbreytingu að ræða þar sem lengd brunagafls er lengri en 7.5 metrar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.