Beint í efni

31. fundur

25.04.2018
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

31. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

25.04.2018

Kl. 12:15 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
  • Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir - aðalmaður
  • Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
  • Þóroddur Bjarnason - varamaður

Starfsmenn

  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1803148

01

Jazzhátíð Garðabæjar 2018

Farið yfir hvernig til tókst.

Jazzhátíð Garðabæjar var haldin í þrettánda sinn dagana 19.-21. apríl sl. Þrennir kvöldtónleikar og einir síðdegistónleikar voru haldnir í safnaðarheimili Kirkjuhvoli og auk þess voru tónleikar í félagsmiðstöðinni Jónshúsi í samstarfi við Félag eldri borgara í Garðabæ. Aðsókn á tónleikana var mjög góð og hátíðin mæltist vel fyrir. Sigurði Flosasyni listrænum stjórnanda var þakkað fyrir sinn þátt.

Málsnúmer 1605103

02

Húsnæði til að starfrækja vinnustofu fyrir leiklist

Erindi Trausta Ólafssonar f.h. leiksmiðjunnar Frigg um áframhaldandi afnot af sal undir leiklistarstarfssemi.

Erindi Trausta Ólafssonar, f.h. leiksmiðjunnar Frigg, móttekið 20.04.18, um áframhaldandi afnot af sal á Garðatorgi til að starfrækja leiklistarstarfsemi.

Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í erindið og felur upplýsingastjóra að skoða nánar um áframhaldandi samning um afnot af salnum frá ágúst 2018 til maí 2019. Skoða þarf aðra notkun á salnum með tilliti til tímafjölda í salnum og skýrt skal kveðið á um umgengisreglur í salnum og öðrum sameiginlegum rýmum.

Málsnúmer 1804268

03

Föstudagstónleikar sumarið 2018

Erindi Ómars Guðjónssonar, yfirmaður ritmískrar deildar Tónlistarskólans í Garðabæ, um föstudagstónleika hjá samspilshóp.

Erindi Ómars Guðjónssonar, deildarstjóra rytmadeildar í Tónlistarskóla Garðabæjar, f.h. samspilshóp í skólanum, dags. 23.04.18, um stuðning vegna föstudagstónleika í Garðabæ sumarið 2018 var tekið fyrir.

Menningar- og safnanefnd tekur vel í erindi samspilshópsins um tónleikahald víðs vegar um Garðabæ í sumar til að lífga upp á bæjarbraginn. Nánari útfærsla verkefnisins verður í samráði við Ómar, s.s. um fjölda tónleika og fyrirkomulag en gert ráð fyrir að fjárupphæð til verkefnsins í heild verði eigi hærri en 500 þúsund krónur.

Málsnúmer 1804267

04

Beiðni um styrk vegna leikrits og kynningar um Alzheimer sjúkdóminn

Erindi Sigrúnar Waage um leikrit og kynningu á Alzheimer sjúkdómnum.

Erindi Sigrúnar Waage, dags. 21.03.18, um styrk vegna leikrits og kynningar um Alzheimer sjúkdóminn haldið í samstarfi við Þjóðleikhúsið, var tekið fyrir.

Menningar- og safnanefnd telur eigi unnt að verða við erindinu.

Málsnúmer 1804150

05

Menningaruppskeruhátíð Garðabæjar 2018

Áframhaldandi umræða frá síðasta fundi um dagskrá menningaruppskeruhátíðar sem verður haldin í samkomuhúsinu á Garðaholti miðvikudaginn 16. maí kl. 17:30-19.

Umræður voru um heiðursviðurkenningar fyrir framlag til menningar og lista og ákvörðun tekin þar um.

Málsnúmer 1803149

06

Bæjarlistamaður Garðabæjar 2018

Áframhald umræðu frá síðasta fundi.

Framhald umræðu frá síðasta fundi.

Menningar- og safnanefnd samþykkir að leggja til við bæjarráð Garðabæjar að einn listamaður verði útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar í ár. Nefndin leggur til að útnefningin á bæjarlistamanni Garðabæjar verði tilkynnt með formlegum hætti á menningaruppskeruhátíð Garðabæjar 16. maí nk. og fer þess jafnframt á leit við alla þá sem að málinu koma að nafni viðkomandi listamanns verði haldið leyndu þangað til.

Málsnúmer 1709093

07

Verkefni veturinn 2017-2018

Farið yfir verkefni framundan, s.s. Jónsmessugleði í sumar og Þriðjudagsklassík á haustönn.

Verkefni framundan eru m.a. Jónsmessugleði sem verður haldin fimmtudagskvöldið 21. júní nk. á vegum Grósku í samstarfi við Garðabæ. Verkefni haustsins s.s. Þriðjudagsklassík, Tónlistarveisla í skammdeginu o.fl. fara til afgreiðslu og umfjöllunar hjá næstu menningar- og safnanefnd.

Formaður þakkaði nefndarmönnum fyrir samstarfið á kjörtímabilinu.