Menningaruppskeruhátíð Garðabæjar 2018
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
31. fundur
Áframhaldandi umræða frá síðasta fundi um dagskrá menningaruppskeruhátíðar sem verður haldin í samkomuhúsinu á Garðaholti miðvikudaginn 16. maí kl. 17:30-19.
Umræður voru um heiðursviðurkenningar fyrir framlag til menningar og lista og ákvörðun tekin þar um.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
30. fundur
Farið yfir undirbúning vegna menningaruppskeruhátíðar 16. maí nk.
Stefnt er að því að halda hina árlegu menningaruppskeruhátíð Garðabæjar miðvikudaginn 16. maí nk. í samkomuhúsinu á Garðaholti. Á menningaruppskeruhátíðinni verður tilkynnt um val á bæjarlistamanni Garðabæjar og úthlutað úr Hvatningarsjóði ungra listamanna. Umræður voru um heiðursviðurkenningar til framlags menningar og lista og þeirri umræðu verður haldið áfram á næsta fundi.