Verkefni veturinn 2017-2018
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
31. fundur
Farið yfir verkefni framundan, s.s. Jónsmessugleði í sumar og Þriðjudagsklassík á haustönn.
Verkefni framundan eru m.a. Jónsmessugleði sem verður haldin fimmtudagskvöldið 21. júní nk. á vegum Grósku í samstarfi við Garðabæ. Verkefni haustsins s.s. Þriðjudagsklassík, Tónlistarveisla í skammdeginu o.fl. fara til afgreiðslu og umfjöllunar hjá næstu menningar- og safnanefnd.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
29. fundur
Greint var frá fundi formanns og upplýsingastjóra með Ágústu Kristófersdóttur forstöðumanni Hafnarborgar í Hafnarfirði um skráningu og utanumhald listaverkasafns Hafnarborgar. Fundurinn var liður í að skoða með hvaða hætti hægt er að endurbæta skráningu á listaverkum í eigu Garðabæjar skv. fyrri umræðum nefndarinnar. Áfram verður unnið að málinu á milli funda.
Rætt var um dagsetningu á menningaruppskeruhátíð Garðabæjar í maí.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
28. fundur
Áframhaldandi umræður um listaverkasafn bæjarins.
Greint var frá fundi formanns og upplýsingastjóra með Hörpu Þórsdóttur, forstöðumanni Listasafns Íslands, sem var áður í forstöðu Hönnunarsafns Íslands, þar sem rætt var um með hvaða hætti væri hægt að endurbæta skráningu á listaverkum í eigu bæjarins samkvæmt umræðu nefndarinnar á síðasta fundi.
Upplýsingastjóra ásamt formanni var falið að vinna áfram að málinu og kynna á næsta fundi.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
27. fundur
Dagskrá í Garðabæ á aðventu, verkefni næsta árs, Jazzhátíð, Listadagar barna og ungmenna, listaverk í eigu bæjarins o.fl.
Gert er ráð fyrir að kynna dagskrá í Garðabæ á aðventu með umfjöllun og/eða auglýsingu í Garðapóstinum þar sem helstu tónleikar og aðrir menningarviðburðir verða kynntir. Einnig með umfjöllun á vef Garðabæjar og fésbókarsíðu.
Umræður voru um verkefni næsta árs en þar má nefna árlega Jazzhátíð í lok apríl og Listadaga barna og ungmenna sem verða haldnir síðustu vikuna í apríl.
Fara þarf yfir og endurbæta skráningu á listaverkum í eigu bæjarins og skoða um leið með hvaða hætti hægt sé að gera listaverkasafn bæjarins aðgengilegra almenningi. Upplýsinga- og menningarfulltrúa falið að skoða þetta nánar fyrir næsta fund.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
05
26. fundur
Árleg jóladagskrá á Garðatorgi hefur undanfarin ár eftir sameiningu tekið mið af því hvenær árlegur jóla- og góðgerðardagur á Álftanesi er haldinn. Í skoðun er hvaða dagsetningar verða í ár þar sem fyrsti í aðventu er í byrjun desember og mun það liggja fyrir á næstu dögum.
Á Álftanesi hefur foreldrafélag Álftanesskóla með aðstoð ýmissa félaga staðið að árlegum jóla- og góðgerðardegi í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi og Garðabær hefur aðstoðað með ýmsa þætti varðandi tækjabúnað. Að lokinni dagskrá innandyra hafa ljósin verið tendruð á jólatrénu á Álftanesi fyrir utan íþróttamiðstöðina.
Á Garðatorgi hefur verið boðið upp á hátíðardagskrá þegar ljósin eru tendruð á vinabæjarjólatré frá Asker í Noregi. Lúðrasveit Tónlistarskóla Garðabæjar hefur spilað fyrir gesti og grunnskólar skiptast á að senda nemendahópa til að syngja jólalög uppi á sviði og jólasveinar hafa mætt fyrr til byggða. Bókasafn Garðabæjar hefur sama dag verið með jólaleikrit til sýnis í safninu á Garðatorgi og Hönnunarsafn Íslands verið með ókeypis aðgang. Skoðað verður betur með hvaða hætti hægt verður að efla dagskrána á torginu þegar ljósin verða tendruð á jólatrénu og bjóða upp á fleiri menningartengda viðburði á torginu í samvinnu við m.a. miðbæjarsamtök Garðabæjar/rekstraraðila á torginu.
Í fyrravetur hélt Bókasafn Garðabæjar rithöfunda-/bókmenntakvöld þar sem rithöfundar lásu upp úr nýjum bókum sem voru að koma út. Stefnt er að því að halda þannig kvöld á ný í bókasafninu fimmtudaginn 21. nóvember nk. þar sem bókmenntafræðingur stýrir umræðunni.
Einnig eru fyrirhugaðir ýmsir tónleikar á vegum kóra og fleiri á aðventunni.
Skoðað verður hvernig hægt er að kynna dagskrá á aðventu í Garðabæ í heild sinni á vef Garðabæjar og í Garðapóstinum.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
06
25. fundur
* Bókasafnsdagurinn verður haldinn föstudaginn 8. september 2017. Bókasafn Garðabæjar býður gestum í vöfflukaffi á Garðatorgi og í Álftanessafni. Sama dag verður uppskeruhátíð sumarlesturs barna í safninu á Garðatorgi.
* Leiksmiðjan Frigg / eða leiksmiðja Garðabæjar hefur tekið til starfa með aðstöðu á Garðatorgi í tilraunaskyni veturinn 2017-2018.
* Starfsáætlun Kvennakórs Garðabæjar veturinn 2017-2018 liggur fyrir og verður send til nefndarmanna.