29. fundur
29. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg
09.03.2018
Kl. 08:15 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
- Þóroddur Bjarnason - varamaður
Starfsmenn
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1803148
01
Jazzhátíð Garðabæjar 2018
Greint var frá fyrstu dagskrárhugmyndum Jazzhátíðar Garðabæjar sem verður haldin dagana 19.-21. apríl nk. Hátíðin er nú haldin í 13. skipti og Sigurður Flosason hefur verið listrænn stjórnandi hátíðarinnar frá upphafi. Jazzhátíðin verður kynnt með dreifibréfi, fréttum á vef og í gegnum fésbókarsíðu hátíðarinnar.
Málsnúmer 1803150
02
Hvatningarsjóður ungra listamanna 2018
Farið var yfir reglur vegna hvatningarsjóðs ungra listamanna og drög að auglýsingu sem verður sett á vef Garðabæjar og birt í Garðapóstinum. Auk þess verður auglýsing send til Fjölbrautaskólans í Garðabæ, Tónlistarskóla Garðabæjar og Listaháskóla Íslands. Frestur til að skila inn umsóknum verður til og með 4. apríl nk.
Tilkynnt verður um úthlutun úr hvatningarsjóðnum á menningaruppskeruhátíð í vor.
Málsnúmer 1803149
03
Bæjarlistamaður Garðabæjar 2018
Farið var yfir reglur vegna útnefningar bæjarlistamanns og drög að auglýsingu. Auglýsingin verður birt á vef Garðabæjar og í Garðapóstinum auk þess sem hún verður send til helstu ýmissa samtaka og hagsmunaaðila listamanna. Ábendingum um bæjarlistamenn skal skilað inn fyrir 4. apríl nk.
Tilkynnt verður um val á bæjarlistamanni á menningaruppskeruhátíð í vor.
Málsnúmer 1709093
04
Verkefni veturinn 2017-2018
Greint var frá fundi formanns og upplýsingastjóra með Ágústu Kristófersdóttur forstöðumanni Hafnarborgar í Hafnarfirði um skráningu og utanumhald listaverkasafns Hafnarborgar. Fundurinn var liður í að skoða með hvaða hætti hægt er að endurbæta skráningu á listaverkum í eigu Garðabæjar skv. fyrri umræðum nefndarinnar. Áfram verður unnið að málinu á milli funda.
Rætt var um dagsetningu á menningaruppskeruhátíð Garðabæjar í maí.
Málsnúmer 1802204
05
Menningar- og fræðslumiðstöð í Garðabæ
Formaður greindi frá tillögu um fjölnota menningar- og fræðamiðstöð sem var lögð fram og
samþykkt í bæjarstjórn Garðabæjar 15. febrúar sl. Á fundi bæjarráðs Garðabæjar 27. febrúar sl. voru eftirfarandi aðilar skipaðir sem fulltrúar í starfshóp til að kanna grundvöll fyrir fjölnota menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ.
Gunnar Valur Gíslason, bæjarfulltrúi og formaður menningar- og safnanefndar.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður skólanefndar.
Þóroddur Bjarnason, varafulltrúi í menningar- og safnanefnd.
Laufey Jensdóttir, formaður Grósku.
Ingibjörg Guðjónsdóttir, kórstjóri Kvennakórs Garðabæjar.
Með hópnum starfar upplýsingastjóri. Starfshópurinn á að hafa lokið störfum í lok apríl 2018. Fyrsti fundur starfshópsins var haldinn þriðjudaginn 6. mars sl.
Umræður voru um verkefni starfshópsins.