Jazzhátíð Garðabæjar 2018
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
31. fundur
Farið yfir hvernig til tókst.
Jazzhátíð Garðabæjar var haldin í þrettánda sinn dagana 19.-21. apríl sl. Þrennir kvöldtónleikar og einir síðdegistónleikar voru haldnir í safnaðarheimili Kirkjuhvoli og auk þess voru tónleikar í félagsmiðstöðinni Jónshúsi í samstarfi við Félag eldri borgara í Garðabæ. Aðsókn á tónleikana var mjög góð og hátíðin mæltist vel fyrir. Sigurði Flosasyni listrænum stjórnanda var þakkað fyrir sinn þátt.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
29. fundur
Greint var frá fyrstu dagskrárhugmyndum Jazzhátíðar Garðabæjar sem verður haldin dagana 19.-21. apríl nk. Hátíðin er nú haldin í 13. skipti og Sigurður Flosason hefur verið listrænn stjórnandi hátíðarinnar frá upphafi. Jazzhátíðin verður kynnt með dreifibréfi, fréttum á vef og í gegnum fésbókarsíðu hátíðarinnar.